Margt um manninn á opnu húsi á listnáms- og hönnunarbraut
15.05.2026
Ánægjulegt var að sjá hversu margir mættu á opið hús á listnáms- og hönnunarbraut sl. miðvikudagskvöld.
Það var margt um manninn á opnu húsi á listnáms- og hönnunarbraut VMA sl. miðvikudagskvöld. Opna húsið er fastur liður í lok hverrar annar, þar sýna nemendur hvað þeir hafa verið að vinna að á önninni.
Hilmar Friðjónsson var með myndavélina á lofti og tók þessar myndir á opna húsinu.