Línur lagðar fyrir Norrænu nemakeppnina í VMA í apríl 2027
Dagana 15. og 16. apríl á næsta ári verður Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin í húsakynnum matvælabrautar VMA. Keppnin er haldin fimmta hvert ár á Íslandi en nú er komið að því í fyrsta skipti að halda hana á Akureyri. Í síðustu viku hittust í VMA fulltrúar Norðurlandanna fimm sem standa að Norrænu nemakeppninni til þess að bera saman bækur sínar og leggja línurnar með fyrirkomulag hennar.
Norræna nemakeppnin er árleg og á sér langa sögu. Hún var í fyrsta skipti haldin árið 1981 og er til skiptis haldin á Norðurlöndunum fimm, í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og á Íslandi. Ísland var í fyrsta skipti með í keppninni árið 1987 og því verða á næsta ári liðin fjörutíu ár frá því að keppnin var í fyrsta skipti haldin á Íslandi. Þegar Norræna nemakeppnin hefur komið í hlut Íslands hefur hún verið haldin á höfuðborgarsvæðinu en nú verður hún í fyrsta skipti haldin utan þess.
„Á þessum fundi hér í VMA fórum við yfir síðustu keppni, sem var haldin í Svíþjóð, við fórum líka í gegnum reglur keppninar til að tryggja að hún fari sem allra best fram hér í VMA í vor. Það eru ýmsar ástæður fyrir því að við völdum að halda keppnina hér á Akureyri. Meðal annars sýndu samstarfsaðilar okkar á hinum Norðurlöndunum því áhuga að keppnin yrði haldin utan Reykjavíkur og fannst okkur það mjög góð hugmynd. Fyrir nokkrum mánuðum vorum við með fund í Klúbbi matreiðslumeistara hérna fyrir norðan og þá komst ég að raun um að það væri í senn mjög gerlegt og skemmtilegt að halda keppnina hér. Í framhaldinu hafði ég samband við kollega mína í hinum löndunum og allir voru mjög spenntir fyrir því að keppnin yrði hér. Vonandi getum við bara komið því kerfi á að þegar keppnin kemur í hlut Íslands verði hún til skiptis í Reykjavík og hér á Akureyri.
Um er að ræða keppni bæði matreiðslu- og framreiðslunema. Frá hverju landi taka þátt tveir matreiðslunemar og tveir framreiðslunemar og því verða í það heila tuttugu keppendur. Með þeim verða síðan þjálfarar og aðrir og því er þetta heilmikill viðburður sem gaman verður að fylgjast með. Fyrri daginn útbúa matreiðslunemarnir sína matseðla út frá verkefnum sem þeir fá fyrirfram, þeir útfæra rétti út frá gefnu hráefni. Seinni daginn elda þeir síðan þriggja eða fjögurra rétta málsverð fyrir fólk sem verður hér í salnum. Framreiðslunemarnir verða síðan að þjóna, flambera, leggja á borð eftir kúnstarinnar reglum, brjóta sérvíettur, útbúa kokteila o.fl.
Keppnin sjálf verður hér í eldhúsinu á matvælabraut VMA og það verður þjónað til borðs hér í salnum. Við sjáum ekki annað en að þetta eigi að geta gengið mjög vel upp hér. Hér verða salarkynni opin og því getur fólk fylgst vel með hvernig þetta fer fram og einnig komum við til með að streyma viðburðinum þannig að sem flestir geti fylgst með.
Ég held að svona keppni skipti miklu máli fyrir þessa starfsgrein því hún vekur athygli á því fyrir hvað við stöndum. Við þurfum á því að halda hér á Íslandi að fjölga bæði matreiðslumönnum og framreiðslumönnum og tryggja þannig fagmennsku í greininni. Svo mikið er víst að ein auðveldasta leiðin til þess að fá trygga og örugga vinnu er að læra kokkinn eða þjóninn. Ég held líka að keppnin komi til með að verða lyftistöng fyrir veitingageirann hér á svæðinu og hún mun án efa vekja athygli á VMA og matvælanáminu hér,“ segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara og framkvæmdastjóri íslenska kokkalandsliðsins.