Fara í efni

Listræn nálgun á Hvalasafni

Eva Björk Káradóttir hefur veitt Hvalasafninu forstöðu undanfarin ár. Mynd: Húsavík.Com
Eva Björk Káradóttir hefur veitt Hvalasafninu forstöðu undanfarin ár. Mynd: Húsavík.Com

Eva Björk Káradóttir, safnstjóri Hvalasafnsins á Húsavík, verður með þriðjudagsfyrirlestur í dag, þriðjudaginn 10. mars kl. 16:15, í Listasafninu á Akureyri.

Eva Björk hefur í rúm sjö ár leitt uppbyggingu Hvalasafnsins og mótað sýningar sem tengja saman vísindi, menningu og náttúru – allt með hvali í forgrunni.

Í þriðjudagsfyrirlestrinum í dag mun Eva Björk veita innsýn í heim sýningagerðar í sérhæfðu safni. Hún fjallar um hugmyndavinnu, ákvarðanatöku og skapandi lausnir í uppbyggingu sýninga þar sem saga, vísindi og menning hvala móta efnistök og framsetningu.

Í fyrirlestrinum verður einnig sjónum beint að listrænni nálgun í Hvalasafninu, með aðkomu myndlistarmanna við miðlun vísinda, lista og menningar í sýningagerðinni. Auk þess mun Eva Björk fjalla um sköpun og þróun sýningarrýmis fyrir myndlist innan safnsins og velta upp spurningunni: Hvers konar myndlist á heima á hvalasafni?

Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir á fyrirlesturinn.

Sem fyrr eru þriðjudagsfyrirlestrarnir samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins.