Fara í efni

Kynntu sér margmiðlun í Kilkenny

Dagný og Hilmar í Kilkenny.
Dagný og Hilmar í Kilkenny.

Í síðustu viku voru Dagný Hulda Valbergsdóttir, sem heldur utan um alþjóðleg samskipti í VMA, og Hilmar Friðjónsson kennari í VMA í heimsókn í  margiðlunarmiðstöð í Kilkenny á Írlandi sem kallast Young Irish Film Makers (YIFM). Ferð þeirra til Írlands var svokölluð starfspeglun og styrkt af Erasmus styrktarkerfi ESB. Í janúar á næsta ári er von á þriggja manna teymi frá YIFM í VMA sem mun halda námskeið fyrir nemendur og kennara í VMA í gerð margmiðlunarefnis.

En fyrir hvað stendur Young Irish Film Makers? Þessi miðstöð var sett á stofn árið 1991 af Mike Kelly í Kilkenny, sem er tæplega þrjátíu þúsund manna borg. Markmiðið var og er að gefa ungu fólki tækifæri til að læra kvikmyndagerð með því að gera sjálft kvikmyndir og margmiðlunarefni. Lýsa mætti YIFM sem landsamtökum sem vinna að kvikmynda- og teiknimyndagerð ungs fólks. Starfsfólk YIFM fer út um allt Írland og heldur námskeið í skólum og einnig eru haldin sumarnámskeið og starfræktur kvikmyndaklúbbur. Starfsemin tekur því til kvikmyndagerðar, teiknimynda, stafrænnar miðlunar, kvikmyndanáms, sumarnámskeiða, vinnustofa og námskeiða í skólum og starfsþjálfunar.

Dagný Hulda Valbergsdóttir segir að afar vel hafi verið tekið á móti henni og Hilmari og kynningin sem þau fengu á starfsemi YIFM hafi verið afar lærdómsrík og gagnleg í alla staði. Dagný segir að gaman verði að fá Írana í heimsókn í VMA í janúar og fylgja þannig heimsókn hennar og Hilmar til Írlands eftir. Hún segir að hún og Hilmar hafi lengi haft áhuga á því að byggja upp þekkingu í VMA í miðlun af ýmsu tagi, bæði í félagslífi nemenda og í námi, og heimsóknin til Írlands hafi styrkt þau í þeirri trú. Búnaðurinn eða í það minnsta hluti hans sé til staðar í VMA og verkefnið sé að nýta alla þá möguleika sem hann veiti.