Fara í efni

Kynningarfundur fyrir nemendur sem hafa ekki verið áður í VMA (fæddir fyrir 2006)

Frá dimmiteringu maí 2022
Frá dimmiteringu maí 2022

Kynningarfundur verður miðvikudaginn 17. ágúst kl. 11.30 fyrir nemendur sem fæddir eru árið 2005 eða fyrr og hafa ekki verið áður í VMA eða eru að koma aftur í skólann eftir hlé. Á fundinum fara náms- og starfsráðgjafar yfir ýmislegt er varðar skólastarfið, um mötuenyti, tölvumál, stoðþjónustu og ýmislegt fleira sem gott er að vita sem nemandi í VMA. Jafnframt hafa nemendur tækifæri til að spyrja spurninga. 

Fundurinn verður fjarfundur og hér er slóð á fundinn. 

 

Hægt er að senda póst á vma@vma.is ef þið lendið í vandræðum með að tengjast fundinum.