Fara í efni

Kynning í VMA á námi í Noregi

Á morgun miðvikudaginn 17. febrúar, kl. 14.00 verður haldin kynning í VMA á þrenns konar skapandi námi við háskóla í Noregi. Um er að ræða þrjár brautir, allar til bachelorgráðu. Sú fyrsta nefnist þrívíddarlist, kvikun og myndbrellur (3D art, animation & VFX), önnur er sjónvarps- og kvikmyndaframleiðsla (TV and film production) og að lokum bjóðum við upp á tölvuleikjahönnun (digital game design). Kynningin verður í stofu M01 og allir velkomnir.