Fara í efni

Kynning á VMA fyrir nýja nemendur skólans

Nemendur fæddir árið 2003 eða fyrr, sem hafa ekki áður verið nemendur í VMA en eru ekki nýnemar eru boðaðir á kynningarfund mánudaginn 24. ágúst kl. 8.30 í stofu M01. Náms- og starfsráðgjafar fara yfir ýmislegt í tengslum við það að stunda nám við VMA, farið yfir þá þjónustu sem stendur nemendum til boða, skipulag á húsnæði skólans og starfsemina almennt. 

Nemendur koma inn í skólann um norðurinngang (sem snýr að Mímisbraut). Helga og Svava Hrönn náms- og starfsráðgjafar taka á móti nemendum.