Fara í efni

Króatísk list í þriðjudagsfyrirlestri

Ivana Pedljo og Jasmin Dasović.
Ivana Pedljo og Jasmin Dasović.

Í dag, þriðjudaginn 8. mars kl. 17-17.40, halda króatísku myndlistarmennirnir Ivana Pedljo og Jasmin Dasović fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Developing New Contemporary Circus Practices in Croatia. Þar munu þau ræða um menningarsenuna í Króatíu með áherslu á samtímasirkus og skyld listform. Einnig ræða þau verk, vinnuaðferðir og nálganir í tengslum við staðbundnar þarfir og samhengi.  

Ivana Pedljo skapar og fremur gjörninga með gjörningahópnum Tricycle Trauma frá Zagreb, sem hún stofnaði ásamt félögum sínum. Hún hefur lokið mastersgráðu í bæði félagsfræði og heimspeki. Jasmin Dasović fæst aðallega við hljóð- og ljósahönnun, enda menntaður í því fagi. Hann er einnig tæknilegur framkvæmdastjóri menningarhússins Mochvara í Zagreb og tæknimaður fyrir Tricycle Trauma. Auk þess fæst hann við við djöggl, jafnvægislistir og leikstjórn. 

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er enginn aðgangseyrir.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, MA og Gilfélagsins.