Kristján Ingimarsson í fyrsta þriðjudagsfyrirlestri vetrarins
30.09.2025
Einn af föstum liðum í starfi Listasafns Akureyrar eru þriðjudagsfyrirlestrar þar sem listafólk í hinum ýmsu listgreinum segir frá því sem það fæst við í listsköpun sinni. Kristján Ingimarsson leikari og leikstjóri heldur fyrsta fyrirlestur vetrarins í dag, þriðjudaginn 30. september, kl. 16.15 í Listasafninu og er yfirskrift hans Tilurð Femina Fabula. Þar mun hann fjalla um sýndarveruleikainnsetninguna Femina Fabula, sem nú stendur yfir í Listasafninu, listrænt samstarf, vinnuaðferðir og nýjar leiðir til að finna nýja nánd við áhorfendur.
Kristján Ingimarsson, sem er leikhúsmaður og leikhússtjóri, fæddur á Íslandi en búsettur í Danmörku, er þekktur fyrir líkamlegar og sjónrænar nálganir á leikhús. Hann er stofnandi og listrænn leiðtogi Kristján Ingimarsson Company og framleiðir sýningar sem fara yfir mörk leikhúss, sviðslistar, dans, myndlistar og innsetninga. Þekkt verk hans á alþjóðavettvangi eru BLAM! og ROOM 4.1 – LIVE. Hann leiðir einnig listræna samstarfið Hangar People þar sem blandast saman leikhús, innsetningar, leikjauppbygging og upplifunarform.
Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru sem fyrr samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, VMA, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins.