Fara í efni

Krakkar á Tröllaborg í heimsókn

Tröllaborgarkrakkar og starfsmenn leikskólans.
Tröllaborgarkrakkar og starfsmenn leikskólans.

Jafnan er gestkvæmt í VMA - bæði innlendir sem erlendir gestir og á öllum aldri. Í gær heimsótti skólann hópur áhugasamra framtíðarnemenda skólans af leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri og kynnti sér hvað skólinn hefur upp á að bjóða. Sigríður Huld skólameistari sagði krökkunum frá skólastarfinu og gekk með þeim um skólann. Tröllaborgarkrökkunum og starfsmönnum leikskólans eru færðar bestu þakkir fyrir heimsóknina.