Fara í efni

Kennsla hefst 11. janúar

Kennsla á vorönn 2021 hefst mánudaginn 11. janúar samkvæmt stundatöflu.  

  • Allir bóklegir áfangar verða kenndir með rafrænum hætti vikuna 11. - 15. janúar. Nemendur mæta samkvæmt stundatöflu í fjartíma og eiga kennarar alltaf að vera til taks í kennslustundum samkvæmt stundatöflu. 

  • Áfangar í verk- og listnámi verða kenndir á staðnum frá 11. janúar.

  • Nemendur á starfsbraut og sérnámsbraut mæta í skólann frá 11. janúar.

Hlutverk nemenda í sóttvörnum er afar mikilvægt og eru nemendur beðnir um að lesa vel þau tilmæli sem sett hafa verið fram um sóttvarnir. 

reglugerð um takmörkun á skólastarfi hefur verið gefin út. 

Nemendum ber að fara eftir þeim reglum sem hafa verið settar innan skólans og fara eftir fyrirmælum kennara og annars starfsfólks. Saman höfum við það verkefni að geta haldið úti sem bestu skólastarfi og framfylgja sóttvörnum. 

Grunnurinn að sóttvörnum er: 

  • Takmarka smitleiðir og halda samneyti nemenda og starfsmanna í lágmarki. 

  • Veikir nemendur og starfsmenn koma ekki í skólann.

  • Viðhafa gott hreinlæti og sóttvarnir

Rými - fjöldatakmarkanir

Í reglugerðinni er talað um rými - Kennslustofa er t.d. eitt rými.

  • Nemendur og starfsmenn geta farið á milli rýma (blöndun hópa leyfileg) en við reynum eftir fremsta megni að takmarka alla blöndun eins og hægt er. 

  • Reglugerðin tekur til þess að 30 einstaklingar mega vera í sama rými og það er grímuskylda. 

  • Í haust var skólabyggingunni skipt niður í ákveðin svæði og við höldum áfram að miða við þessi svæði. Svæði eru ekki skilgreind í reglugerðinni en við viðhöfum sömu aðgát og sóttvarnir eins og hingað til.  

  • Búið er að líma örvar á gólf sem sýna gönguleiðir, á göngum gildir hægri reglan. 

  • Nemendur þvo sér um hendur eða nota handspritt þegar þeir fara úr einu svæði yfir í annað. 

  • Hvert verkstæði í iðnnámi er eitt svæði.
  • Hver bóknámsálma er eitt svæði (B, C og D álma)
  • Listnámsbrautarstofur á efri hæð eru eitt svæði.

  • Bókasafnið er eitt svæði.

  • Gryfjan er eitt svæði.

  • M01 og M03 eru eitt svæði.

  • M11 - íþróttaðstaða í kjallara er eitt svæði.

  • Nemendur fara aldrei á milli svæða nema til að fara í næstu kennslustund.  

  • Gangar eru einungis til að fara á milli stofa. 

  • Öll hópamyndun á göngum eða í öðrum rýmum skólans er stranglega bönnuð. Tekið verður mjög strangt á því fari nemendur ekki eftir fyrirmælum um hópamyndanir, m.a. verður brugðist við með því að nemendur fá ekki að mæta í kennslustundir í skólanum.

Nemendur nota mismunandi inn- og útganga eftir því hvar þeir eru í kennslustund. Búið er að setja upp merkingar við alla þrjá inngangana.

  • Vesturinngangur (sem snýr að Hlíðarfjalli)

    • verkstæði byggingadeildar (E-stofur)

    • M03

    • M-11 (kjallari)

    • D-álma

    • náms- og starfsráðgjafar

  • Norðurinngangur (sem snýr að Mímisbraut)

    • verkstæði rafiðna (F-stofur)

    • kennslustofur listnáms á efri hæð (G-stofur)

    • matvælabraut (G-stofur)

    • C-álma

    • M01

    • FabLab smiðja

    • skólasálfræðingur

  • Austurinngangur (snýr að Vaðlaheiði og styttunni af Þór)

    • verkstæði og kennslustofur vélstjórnar (I-stofur)

    • verkstæði málmiðngreina (H-stofur)

    • verkstæði bíliðngreina (H-stofur)

    • B-álma

    •  A-álma - vinnurými kennara, aðalskrifstofa og skrifstofur stjórnenda. 

Nemendur eru beðnir um að virða þessa stýringu á flæði nemenda inn og út úr byggingum skólans svo ekki þurfi að grípa til harðra aðgerða.  

Mötuneyti

  • Mötuneyti í Gryfju verður ekki opið til að byrja með.  Hugsanlegt er þó að það verði opið í hádeginu en selji þá fyrst og fremst samlokur og slíkt. Gangi allt eftir mun opnun og framboð aukast frá 18. janúar. 

  • Nemendur sem koma með eigið nesti geta borðað það í Gryfjunni en aðstaða fyrir samlokugrill og örbylgjuofn verður ekki í boði.  

  • Fjöldatakmarkanir í Gryfju miðast við 30. 

 Bókasafnið

  • Óbreyttur opnunartími en takmarkaður fjöldi þar á hverjum tíma er 30 manns. 

  • Nemendur geta fengið lánaðar fartölvur til notkunar á skólatíma á bókasafninu eins og verið hefur. Tölvustofa á bókasafni verður lokuð fyrst um sinn. Nemendur eru hvattir til að vera með eigin fartölvur í skólanum.

  • Hópamyndun á bókasafninu er stranglega bönnuð eins og í öðrum almennum rýmum skólans.

  • Nemendur geta haft samband við starfsfólk bókasafns og fengið leiðbeiningar, upplýsingar, óskað eftir að fá skannað inn efni og almenna aðstoð við verkefnavinnu. 

  • Bókasafnið lokar kl. 16 á virkum dögum nema á föstudögum er opið til kl. 15. 

Íþróttakennsla

Gert er ráð fyrir að íþróttatímar verði í fjarkennslu til að byrja með. Nánari upplýsingar til nemenda munu koma frá íþróttakennurum. 

 Hlutverk nemenda 

  • Handþvottur með sápu og vatni í a.m.k. 20 sekúndur er mikilvægasta forvörnin, þvoið hendur áður en þið komið í skólann, í skólanum og áður en þið farið úr skólanum. 

  • Ef ekki er aðstaða til handþvottar þá notið handspritt sem er í hverri álmu/svæði. Nemendur geta jafnframt notað eigin handspritt í litlum umbúðum ef þeir óska þess. 

  • Nemendur taka þátt í að sótthreinsa kennslustofur á milli hópa. Nemendur í verklegum áföngum í iðn-, starfs- og listnámi þurfa að sótthreinsa sitt vinnusvæði og þau áhöld sem notuð eru í kennslustundinni. Leiðbeiningar um sótthreinsun verða í hverri kennslustofu. Nemendur fari eftir þeim fyrirmælum sem sett eru um sóttvarnir og þátttöku nemenda í sótthreinsun. 

  • Virðum nándarmörk. Reglan er að við notum tveggja  metra regluna eins og hægt er og það er grímuskylda. Uppröðun í kennslustofum miðast við sem mestar fjarlægðir og hægt er á milli nemenda. Í hverri kennslustofu (rými) mega vera 30 manns. 

  • Hvatt er til notkunar á fjölnotagrímum af umhverfissjónarmiðum sérstaklega. Allir geta fengið einnota grímur í skólanum. Hanska er hægt að nota en reglulegur handþvottur er besta forvörnin. 

  • Þeir sem nota grímu og/eða hanska þurfa að kynna sér rétta notkun á þessum hlutum og farga þeim á viðeigandi hátt í almennt rusl. 

  • Grímur og hanskar koma aldrei í staðinn fyrir aðrar persónulegar sóttvarnir s.s. handþvott, sprittun og nándarmörk. 

Nemandi sem er veikur eða hefur grun um að hann sé smitaður, kemur alls ekki í skólann með einkenni. 

  • Helstu einkenni einkenni COVID-19 sýkingar minna á venjulega flensu: hiti, hósti, bein- og vöðvaverkir og þreyta. Einkenni frá meltingarfærum (kviðverkir, ógleði/uppköst, niðurgangur) eru ekki mjög áberandi með COVID-19 en eru þó þekkt. Breytingu, eða tapi á bragð- og lyktarskyni er lýst hjá 20–30% sjúklinga.

  • Sýni nemandi einkenni á skólatíma er hann tafarlaust sendur heim. Haft verður samband við forráðamenn nemenda yngri en 18 ára. Mikilvægt er að nemandi með kvefeinkenni fari eftir þeim fyrirmælum sem hann fær frá starfsfólki skólans. 

  • Nemandi sem greinist með Covid-19 skal tafarlaust tilkynna það til skólameistara. Smitrakning og fyrirmæli um einangrun eða sóttkví koma frá smitrakningateymi Almannavarna, engum öðrum. 

  • Nemandi sem hefur farið í Covid-19 sýnatöku kemur ekki í skólann fyrr en hann hefur fengið niðurstöðu úr sýnatökunni. 

  • Nemendur í sóttkví mega alls ekki koma í skólann fyrr en að lokinni sóttkví. 

  • Nemendur eru almennt hvattir til að hitta aðeins nánustu vini utan skólans og forðast fjölmenni með fólki sem það umgengst lítið eða ekkert. 

  • Heimavistin er aðeins fyrir íbúa heimavistarinnar og gestir ekki leyfðir. 

Skólinn biður alla nemendur og starfsmenn um að vera með C-19 rakninga-appið uppsett og kveikt á því í símum sínum, utan sem innan skólans.

Þurfi nemendur að vera í einangrun eða í sóttkví verður unnið að því að finna lausnir varðandi þátttöku í námi. Það verður gert í samstarfi við stjórnendur og nemendur/forráðamenn. 

Að lokum

  • Ef þú hefur áhyggjur, ræddu málin við umsjónarkennara, sviðsstjóra, náms- og starfsráðgjafa eða aðra innan skólans sem þú treystir. Upplýsingar um stjórnendur og nemendaþjónustu VMA eru á heimasíðu skólans. 

  • Foreldrum er velkomið að hafa samband við umsjónarkennara eða stjórnendur.

  • Það er eðlilegt að vera óöruggur við þessar aðstæður, það tekur okkur öll tíma að aðlagast og læra að vinna í þessum aðstæðum.

  • Verum þolinmóð og gefum okkur tíma - við getum ekki breytt þeim aðstæðum sem veiran setur okkur í en við getum frekar ráðið því hvernig við bregðumst við og gert okkar besta. 

  • Ræktum vinasambönd.

  • Verið skipulögð í náminu og nýtið tímann vel í kennslustundum.

  • Það er auðveldara að takast á við breytingar ef við notum húmor og jákvæðni.

Þetta skipulag er sett upp fyrir a.m.k. fyrstu vikuna í byrjun vorannar 2021. Endurskoðun að því loknu og fyrr ef ástæða verður til. 

Breytingar á skólastarfi geta orðið fyrirvaralaust komi upp smit eða vegna fyrirmæla frá almannavörnum. 

Eyrarlandsholti, 7. janúar 2021

Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari VMA