Fara í efni

Kennsla eftir páskafrí - allir áfangar í staðkennslu

Aftur í skólann eftir páskafrí.
Aftur í skólann eftir páskafrí.

- Information in English below -

Kennsla eftir páskafrí hefst þriðjudaginn 6. apríl samkvæmt stundaskrá. Allir áfangar verða kenndir í staðkennslu eins og var fyrir páska.

Samkvæmt núverandi reglugerð um takmörkun á skólastarfi þá mega ekki fleiri en 30 manns vera saman í rými. Nemendur eru minntir á að virða sóttvarnir sem fyrr. 

  • Grímuskylda er í skólanum. Alltaf allsstaðar.
  • Reynum að halda 2ja metra fjarlægð eins og hægt er.
  • Þvo hendur og spritta reglulega.
  • Sótthreinsun í kennslustofum á milli hópa eftir kennslustundir.
  • Bókasafnið verður opið en virðum vinnufrið og fjöldatakmarkanir.
  • Hópamyndanir eru ekki leyfðar og nemendur beðnir um að vera ekki í skólanum  nema til að koma í kennslustundir.
  • Gryfjunni verður skipt niður í tvo 30 manna hólf og mötuneytið verður opið. 
  • Alls ekki mæta í skólann ef þið finnið fyrir flensueinkennum. Ef þið finnið fyrir flensueinkennum þá pantið ykkur tíma í skimun og mætið ekki í skólann fyrr en þið hafið fengið niðurstöður úr skimuninni.

Við þurfum öll að leggjast á eitt um að láta þetta ganga upp og koma í veg fyrir smit.

Skólameistari.

- Information in English -

After Easter break all courses will be taught at school. 

Let's continue the good work we have been doing regarding the precautions, going by the rules. This is how we will be able to continue coming to school.

Remember: 

  • Use a mask all the time inside the school and make sure it covers mouth and nose

  • Stay home if you have any symptoms

  • Wash your hands and use hand sanitizer if you can’t wash your hands

  • Keep a safe distance

  • Students are reminded not to form groups within the school specially the canteen area nor hang around after finishing their meal. Make room for other diners. 

  • The library will be open.

Students have done a wonderful job of sticking to the rules set by the school and the authorities. Keep up the good work!

Sigríður Huld, principal