Fara í efni

Kennarar frá Spáni í heimsókn

Sadia Diaz (til vinstri) og Luz Banos.
Sadia Diaz (til vinstri) og Luz Banos.

Í síðustu viku voru tveir framhaldsskólakennarar frá Spáni, Luz Banos og Sadia Diaz, í VMA til að kynna sér skólastarfið og sjá áherslurnar í kennslu í hinum ýmsu námsgreinum. Þær stöllur starfa í sitt hvorum framhaldsskólanum í útjaðri höfuðborgarinnar Madrídar. Ferð þeirra til Akureyrar var styrkt af Erasmus+ menntaáætlun ESB.

Luz Banos kennir m.a. ferðamálagreinar en Sadia Diaz kennir viðskiptatengdar greinar

Í byrjun mars sl. heimsóttu nemendur í 2. bekk í matreiðslu í VMA og kennarar þeirra verknámsskóla í Móstoles í útjaðri Madrídar. Sadia Diaz starfar einmitt við þennan skóla og því endurnýaði hún kynnin við matreiðslunemana og Ara brautarstjóra í heimsókninni til Akureyrar. Síðastliðinn miðvikudag buðu þessir sömu matreiðslunemarnir einmitt til hádegisverðar í VMA en liður í námi þeirra er að elda margrétta hádegisverð - bæði heitan og kaldan mat. Luz og Sadia var að sjálfsögðu boðið að njóta matarins.

Þær stöllur höfðu orð á því að í slíkum náms- og kynningarheimsóknum á Spáni væri oftast farið til nágrannalandanna, t.d. Frakklands eða Ítalíu. Á margan hátt væri margt þar líkt því sem þær ættu að venjast í skólunum á Spáni. Þegar tækifæri hafi gefist til þess að fara til Akureyrar og tengslin voru komin við VMA hafi þær ekki verið lengi að grípa gæsina. Þær hafi gjarnan vilja sjá hvernig staðið væri að skólamálunum í á margan hátt ólíku landi með ólíka menningu og venjur. Sannarlega sjái þær ekki eftir því að hafa nýtt þetta tækifæri. Mikilvægt sé að spegla sitt daglega starf í því sem gert sé í skólum í öðrum löndum. Af því megi svo margt læra. Eitt af því sem þær sögðu að væri ólíkt hér og á Spáni væri hvernig staðið væri að starfsþjálfun á vinnustöðum. Kerfið á Íslandi væri án vafa á margan hátt betra fyrir nemendur en á Spáni. Að sumu leyti mætti rekja það til þess að nemendur þar væru umtalsvert fleiri á Spáni en hér og því ætti hver og einn nemandi hér þess kost að fá meira út úr starfsnáminu. Þær sögðust hafa notið þess að kynnast nemndum í VMA. Þeiri væru opnir og ófeimnir að ræða um það sem þeim liggi á hjarta og þá hefði einnig verið ánægjulegt að sjá hversu vel væri búið að nemendum og mikið væri lagt upp úr hreinlæti og snyrtimennsku.

Eins og vera ber nýttu þær tækifærið til þess að sjá sig um og njóta íslenskrar náttúru. Meðal annars sáu þar hvali í hvalaskoðunarferð í Eyjafirði og fóru austur að Goðafossi og í Mývatnssveit. Einnig nutu þær þess að keyra frá Reykjavík norður til Akureyrar og aftur suður og virða fyrir sér fjölbreytta náttúru, jafnvel þó hún sé vissulega svolítið grá og guggin á þessum árstíma. Aðfaranótt laugardags var gist í Þykkvabæ og á laugardaginn sáu þær sig um á Suðurlandi. Heim var síðan haldið í sl. sunnudag.