Kaffihúsakvöld Ungskálda á Lyst 4. nóvember
Miðvikudagskvöldið 4. nóvember kl. 20:00-21:30 nk. efna Ungskáld til kaffihúsakvölds á Lyst í Lystigarðinum á Akureyri. Kaffihúsakvöldið er opið öllum á aldrinum 16-25 ára sem hafa áhuga á ritlist. Veitingar í boði fyrir skráða gesti. Hér er hægt að skrá sig.
Kaffihúsakvöldið er kjörinn vettvangur til þess að hita upp fyrir úrslit ritlistakeppni Ungskálda sem verða kynnt á Amtsbókasafninu 16. nóvember nk. Þetta verður upplagt tækifæri til þess að læra eitthvað nýtt, kynnast skrifum annarra og jafnvel að lesa upp úr verkum sínum.
Kynnir á kaffihúsakvöldinu verður Guðmar Gísli Þrastarson nemandi í VMA en nemendur í MA sjá um tónlistaratriði.
Vert er að undirstrika að frestur til að skila inn hugverkum í ritlistakeppni Ungskálda 2026 er til miðnættis nk. sunnudag, 1. nóvember. Ritlistakeppnin er fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára og eru veitt peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Hér geta áhugasamir sent inn verk sín.
Að verkefninu Ungskáldum standa VMA, MA, Akureyrarbær, Ungmennahúsið, Amtsbókasafnið og Sóknaráætlun Norðurlands eystra.