Fara í efni

Jonna ræðir um endurvinnslulist

Jonna (Jónborg Sigurðardóttir).
Jonna (Jónborg Sigurðardóttir).

Eins og undanfarna vetur er efnt til svokallaðra þriðjudagsfyrirlestra í vetur í Ketilhúsinu og eru þeir samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, VMA, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri.

Myndlistarkonan Jonna (Jónborg Sigurðardóttir) verður með annan fyrirlestur vetrarins í dag, þriðjudaginn 17. október kl. 17-17.40. Í fyrirlestrinum sem Jonna nefnir Af hverju endurvinnslulist? fjallar hún um hvernig endurnýting á rusli hefur verið henni efniviður í myndlist undanfarin misseri.

Jonna útskrifaðist úr fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri vorið 1995 og sem fatahönnuður frá Københavns Mode- og Designskole 2011. Myndlist hennar spannar vítt svið, allt frá málverki til innsetninga. Hún hefur verið mjög virk í listalífinu á Akureyri síðustu árin; haldið einkasýningar, tekið þátt í samsýningum og staðið fyrir uppákomum.

Aðgangur er ókeypis.