Fara í efni

Jöfnunarstyrkur fyrir námsárið 2026-2027

Það er nú opið fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk fyrir námsárið 2026–2027. Styrkurinn er ætlaður framhaldsskólanemum sem stunda nám fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu.

Jöfnunarstyrkur skiptist í akstursstyrk, að upphæð 125.000 krónur á önn, og dvalarstyrk sem nemur 213.000 krónum á önn. Nemendur geta sótt um styrk í allt að fjögur ár eða átta annir.

Umsóknarfrestur er 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn. Ef umsókn um námsstyrk berst eftir auglýstan umsóknarfrest skerðist styrkurinn um 15% frá 1. nóvember á haustönn og frá 1. mars á vorönn.

Styrkirnir eru greiddir út í janúar og júní eftir að skólarnir hafa staðfest námsárangur.


Hægt að sækja um hér