Fara í efni

Íþróttamót nýnema í VMA

Flott tilþrif sáust á íþróttamóti nýnema í Íþróttahöllinni á Akureyri í síðustu viku.
Flott tilþrif sáust á íþróttamóti nýnema í Íþróttahöllinni á Akureyri í síðustu viku.

Í síðustu viku var haldið íþróttamót nýnema í Íþróttahöllinni á Akureyri sem nemendur í áfanga í viðburðastjórnun hjá Hrafnhildi S. Sigurgeirsdóttur skipulögðu. Fróði Sveinsson, einn nemendanna í áfanganum, tók að sér að skrifa neðangreinda frásögn um viðburðinn og eru honum færðar bestu þakkir fyrir:

„Nemendur í viðburðastjórnun (UPPE2FF05) í VMA fengu leyfi hjá skólastjórnendum til að halda íþróttamót nýnema 5. maí sl. frá kl. 13:00 til 15:40 í Íþróttahöllinni á Akureyri. Lokaverkefni þeirra í áfanganum var að skipuleggja og halda mótið.

Mikill tími fór í að finna stað og tíma fyrir þetta mót þar sem öll íþróttahús bæjarins eru þétt setin. Á endanum fannst tími í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þetta tókst með góðu samstarfi við Ólaf íþróttakennara VMA og íþróttakennara í Brekkuskóla.

Nýnemar í VMA eru í kringum 250 talsins. Keppt var í skotbolta (10 í hverju liði), fótbolta (5 í liði) og körfubolta (5 í liði). Það mátti nýta eins marga skiptimenn og nemendur vildu.

Nemendur Jóhanns Þorsteinssonar unnu fótboltann og skotboltann og nemendur Guðríðar Sveinsdótuir unnu körfuboltann.

Hver braut/kennari hafði sinn eigin lit. Nemendur drógu saman nöfn kennara og liti sem endaði á eftirfarandi hátt:

Heba – appelsínugulur
Ína – bleikur
Ómar - grænn
Jóhann – gulur
Hrabba – rauður
Íris - blá
Baldvin - svartur
Guðríður - hvítur
Björk - fjólublár
Dagbjört/Bjössi/Inda/Hafdís/Mummi - grár eða glimmer - kennarar réðu

Nemendafélagið Þórduna var með sjoppu á staðnum þar sem nemendur gátu keypt drykki og samlokur. Þar sem þetta var íþróttamót var ákveðið að hafa hollar vörur til sölu.

Hilmar Friðjónsson og Kristófer Máni tóku myndir af viðburðinum sem hægt er að skoða hér:

Myndaalbúm 1
Myndaalbúm 2
Myndaalbúm 3

Okkur í viðburðastjórnun langar að koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem tóku þátt í viðburðinum, skemmtu sér og aðstoðuðu okkur á einhvern hátt.

Vonandi er svona íþróttamót komið til að vera. Keppnisgreinarnar geta verið mismunandi og margar útfærslur eru til sem ekki voru notaðar að þessu sinni.“