Fara í efni

Íslensk náttúra heillar

Susan Singer.
Susan Singer.

Í dag, þriðjudaginn 14. mars, kl. 17-17.40, heldur bandaríska myndlistarkonan Susan Singer þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu. Yfirskrift fyrirlestursins er The Seasons of Iceland. Þar mun hún sýna dæmi um pastelmálverk sem hún hefur unnið á Íslandi á mismunandi árstíðum.

Áður en Susan Singer kom fyrst til Íslands árið 2015 hafði hún eingöngu fengist við að mála mannslíkamann. Fegurð íslenskrar náttúru hafði þau áhrif að nú einbeitir hún sér eingöngu að landslagsmyndum frá Íslandi. Vorið 2016 dvaldi hún á landinu í 40 daga og er hér nú stödd til að upplifa íslenskan vetur. Hér er dæmi um pastelverk sem Susan málaði af hesti í íslenskri náttúru.

Singer er búsett í Richmond í Virginíufylki í Bandaríkjunum þar sem hún vinnur sem listamaður og kennir einnig á fjölbreyttum námskeiðum, s.s. í teikningu, pastelmálun, gerð sjónrænna dagbóka og munsturteikningu. 

Aðgangur er ókeypis.