Innritun á haustönn 2026
19.06.2026
Innritun nýnema í framhaldsskóla landsins er lokið og var aðsókn mjög góð. Alls innrituðust 270 nýnemar í skólann og einnig hafa nú þegar innritast 94 eldri nemendur.
Við bjóðum alla nýja nemendur velkomna og hlökkum til að taka á móti þeim í ágúst.
Hægt er að finna allar helstu upplýsingar og nýjustu fréttir um skólastarfið hér á heimasíðu skólans. Þar er t.d. að finna nauðsynlegar upplýsingar um skólabyrjun og við hvetjum þig til að skoða þær.
Vonum að þið njótið sumarsins og hlökkum til að sjá ykkur í ágúst.
Vakin er athygli á að skrifstofa skólans er lokuð frá 19. júní til 4. ágúst. Erindum til skólans utan opnunartíma skrifstofu er best að beina á netfang skólans, vma@vma.is.