Innritun á haustönn 2025
20.06.2025
Innritun nýnema í framhaldsskóla landsins er lokið og var aðsókn mjög góð. Alls innrituðust 244 nýnema í skólann og einnig hafa nú þegar innritast 132 eldri nemendur.
Við bjóðum alla nýja nemendur velkomna og hlökkum til að taka á móti þeim í ágúst.
Hægt er að finna allar helstu upplýsingar og nýjustu fréttir um skólastarfið hér á heimasíðu skólans. Þar er t.d. að finna nauðsynlegar upplýsingar um skólabyrjun og við hvetjum þig til að skoða þær.
Vonum að þið njótið sumarsins og hlökkum til að sjá ykkur í ágúst.
Vakin er athygli á að skrifstofa skólans er lokuð frá 23. júní til 5. ágúst. Erindum til skólans utan opnunartíma skrifstofu er best að beina á netfang skólans, vma@vma.is.