Fara í efni

Hvað liggur að baki?

Almar Alfreðsson.
Almar Alfreðsson.

Almar Alfreðsson vöruhönnuður heldur þriðjudagsfyrirlestur í dag, 1. nóvember, kl. 17:00-17:40 í Ketilhúsinu á Akureyri. Yfirskrift fyrirlestursins er Hvað liggur að baki?Í fyrirlestrinum fjallar Almar um af hverju vöruhönnun varð fyrir valinu, Jón í lit ævintýrið, Sjoppulífið og hvernig sögur og tilfinningar veita honum innblástur við hönnun. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Almar útskrifaðist með BA-gráðu í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands 2011. Hann hefur frá 2012 eingöngu unnið sem vöruhönnuður og rekur ásamt eiginkonu sinni hönnunarfyrirtækið Almar vöruhönnun, en það framleiðir meðal annars Jón í lit. Einnig eiga þau hjónin minnstu og einu hönnunarsjoppu landsins, Sjoppuna vöruhús, sem staðsett er í Listagilinu. 

Fyrirlesturinn í dag er í röð fyrirlestra síðdegis á þriðjudögum í vetur og er um að ræða samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, VMA, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri.