Húsasmíðanemar í höfuðborginni
Tuttugu og níu nemendur í húsasmíði í VMA ásamt tveimur kennurum þeirra, Jóhanni Hjaltdal Þorsteinssyni og Braga Óskarssyni, brugðu sér í liðinni viku í náms- og kynnningarferð til höfuðborgarinnar. Farið var suður í rútu sl. miðvikudag og á leiðinni var stoppað í Límtré Vírnet í Borgarnesi og síðan var fyrirtækið BM Vallá á Akranesi skoðað. Komið var til Reykjavíkur undir kvöld og þá tók við við keila og kvöldmatur. Gist var á Hótel Cabin.
Á fimmtudaginn var farið í heimsókn í innréttingaframleiðslufyrirtækið Axis í Kópavogi þar sem nemendur sáu allt það nýjasta í innréttingasmíði. Annar viðkomustaður var Fjölbrautaskólann í Breiðholti þar sem er einnig byggingadeild. Meðal annars var gengið um hálfkláraða nýbyggingu skólans þar sem byggingadeild verður til húsa sem og listnámsbraut skólans og rafvirkjun. Þess er vænst að byggingin verði tekin í notkun síðar á þessu ári og mun verða mikil bylting í skólastarfinu í FB. Þriðja heimsókn fimmtudagsins var síðan í nýju Landspítalabygginguna við Hringbraut sem nemendum og kennurum þótti mikið til koma enda um að ræða stærstu byggingu Íslandssögunnar. Hópnum var skipt í tvo minni hópa og á meðan annar hópurinn gekk um bygginguna fékk hinn hópurinn fyrirlestur um þetta stóra verkefni – og svo öfugt.
Fyrir hádegi sl. föstudag fór VMA-hópurinn síðan á sýninguna Verk og vit í Laugardalshöllinni til þess að kynna sér allt það nýjasta í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum.
Upphaflega var gert ráð fyrir að keyra norður eins og leið liggur upp á hádegi sl. föstudag en vegna veðurs og lokana á heiðum – bæði Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði – var gripið til plans B. Leiðin um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði var fær og ákveðið var að aka hana. Áfram var haldið norður og í ljósi þess að Öxnadalsheiðin var lokuð var norðurleiðin ekin, þ.e. í gegnum Siglufjörð, Ólafsfjörð og Dalvík til Akureyrar. Komið var á leiðarenda um kl. 23 sl. föstudagskvöld.
Í ferðinni voru sem fyrr segir 29 nemendur, bæði á öðru og þriðja ári, og einn nemandi var úr kvöldskólanum.