Fara í efni

Hulda Þórey flutti ávarp brautskráningarnema

Hulda Þórey Halldórsdóttir, nýstúdent af íþrótta- og lýðheilsubraut VMA, flutti ávarp brautskráninga…
Hulda Þórey Halldórsdóttir, nýstúdent af íþrótta- og lýðheilsubraut VMA, flutti ávarp brautskráningarnema.

Við brautskráninguna í Hofi í dag flutti ávarp fyrir hönd brautskráningarnema Hulda Þórey Halldórsdóttir, nýstúdent af íþrótta- og lýðheilsubraut og formaður nemendafélagsins Þórdunu síðustu tvö skólaár:

Kæru útskriftarnemar, starfsfólk VMA og aðrir gestir

Hulda Þórey heiti ég og er að útskrifast sem stúdent af íþrótta- og lýðheilsubraut. Það er mér mikill heiður að fá að standa hér í dag og flytja ávarp fyrir hönd brautskráningarnema.
Ein sú besta ákvörðun sem ég hef tekið var að flytja hingað til Akureyar, verandi Skagfirðingur, búa á heimavistinni og hefja nám í VMA þrátt fyrir að þekkja nánast engan. Það var ekki fyrr en kennarar fóru að stoppa mig á göngunum og spyrja hvað tæki við eftir útskrift að ég áttaði mig á fyrir alvöru að þetta væri að klárast.
Þó að þessum kafla sé nú að ljúka og við útskriftarnemar að fara í sitthvora áttina, þá er ljóst að við tökum með okkur mikinn lærdóm út í lífið.
Á þessum þremur árum hef ég kynnst svo mikið af frábæru fólki sem hefur gert skólagönguna svo miklu betri og ég hef eignast vini og vinkonur til lífstíðar.
Upplifun mín af framhaldsskólaárunum væri ekki sú sama ef ég hefði ekki verið í nemendafélaginu Þórdunu. Að fá að vera formaður síðastliðin tvö skólaár hefur verið eitt það lærdómsríkasta og skemmtilegasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur hér í VMA og gefið mér tækifæri til að kynnast skólanum og fólkinu á allt annan hátt.
Ég hef fengið að taka þátt í að byggja upp félagslífið í skólanum, skipuleggja viðburði og upplifað bæði krefjandi og skemmtilega tíma með frábæru fólki. Þetta hefur kennt mér ótrúlega mikið um skipulag, ábyrgð og samvinnu, en ekki síður um vináttu og samheldni.
Það var stundum erfitt að halda jafnvægi á milli félagslífsins og námsins, sérstaklega þegar mikið var að gerast á sama tíma, en með góðu skipulagi og skilningsríkum kennurum tókst þetta alltaf á endanum.
Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir starfsfólkið hér í VMA. Það hefur verið virkilega gaman að fá að kynnast ykkur, læra af ykkur og vinna með ykkur öll þessi ár. Mig langar sérstaklega að þakka Sólveigu Birnu viðburðarstjóra VMA fyrir allt sem hún hefur gert fyrir okkur og félagslífið í skólanum. Ég hef lært svo ótrúlega margt af henni og ég er mjög þakklát fyrir hennar stuðning í einu og öllu.
Að lokum vil ég segja, takk fyrir allt VMA, innilega til hamingju með áfangann kæru útskriftarnemar, njótið dagsins og gangi ykkur vel í næstu skrefum hvort sem þið ætlið í áframhaldandi nám, vinna eða eitthvað annað þá vona ég að þið hafið fengið góðan lærdóm úr VMA sem nýtist ykkur til framtíðar.

Takk fyrir mig!