Fara í efni

Hugmyndasamkeppni um merki Lundar

Efnt er til samkeppni um merki (lógó) fyrir Lund sjálfseignarstofnun sem á og rekur Heimavist VMA og MA.  Öllum nemendum í VMA og MA er frjálst að taka þátt í samkeppninni og er frestur til að skila inn tillögum til 24. mars nk.Efnt er til samkeppni um merki (lógó) fyrir Lund sjálfseignarstofnun sem á og rekur Heimavist VMA og MA.  Öllum nemendum í VMA og MA er frjálst að taka þátt í samkeppninni og er frestur til að skila inn tillögum til 24. mars nk.



Merkið þarf að henta fyrir ýmiskonar kynningarefni (s.s bréfsefni, umslög og auglýsingar). Æskilegt er að merkið sé einfalt í prentun og í einum lit.
 
Dómnefndin er skipuð skólameisturum VMA og MA, heimavistarstjóra, fulltrúa heimavistarráðs og fulltrúa stjórnar Lundar.  Athugið að Lundur ses áskilur sér rétt til að nýta ekki vinningstillöguna.

Veitt verða peningaverðlaun að upphæð 25.000 krónur fyrir bestu tillöguna.  Úrslit verða kynnt  sumardaginn fyrsta, 19. apríl n.k. á opnu húsi heimavistar, en þar verður jafnframt hægt að skoða þær tillögur sem bárust. Nánari upplýsingar um heimavist VMA og MA má finna á www.heimavist.is

Tillögum að merkinu/lógóinu skal skila til Heimavistar VMA og MA, Eyrarlandsveg 28, 600 Akureyri á tölvutæku formi í umslagi merktu með dulnefni. Í umslaginu skal vera lokað umslag með nafni höfundar.




Mynd er