Fara í efni

Húðflúrun í fyrsta þriðjudagsfyrirlestrinum

Dísa Thors, húðflúrari og teiknari.
Dísa Thors, húðflúrari og teiknari.

Fyrirlestraröðin Þriðjudagsfyrirlestrar í Listasafninu á Akureyri hefst í dag, þriðjudaginn 3. október kl. 17:00-17:40 og verða fyrirlestrar næstu þriðjudaga. Þessi fyrirlestraröð hefur verið haldin í mörg undanfarin ár og er í samstarfi Listsafnsins á Akureyri, Gilfélagsins og Verkmenntaskólans á Akureyri.

Í fyrirlestri dagsins ræðir Dísa Thors, húðflúrari og teiknari, um húðflúrun. Hún mun fjalla um húðflúrun í máli og myndum, m.a. um uppruna húðflúrunnar og mismundandi stíla og aðferðir.

Dísa Thors útskrifaðist af listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti árið 2016 þar sem hún lærði m.a. hönnun, teiknun, tví- og þrívíddar teikningar og litafræði. Dísa hefur unnið að vöruhönnun og myndskreytingum fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki en verið starfandi húðflúrari í fullu starfi síðan 2022 og flúrað yfir 300 húðflúr.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn.

Aðrir fyrirlesarar á haustönn eru Elena Mazzi myndlistarkona, Zoe Chronis myndlistarkona, Magnús Helgason myndlistarmaður, Kristín Elva Rögnvaldsdóttir myndlistarkona, Heather Sincavage gjörningalistakona og Rainer Fischer myndlistarmaður.