Fara í efni

Hlynur Helgason með fyrirlestur í Ketilhúsinu

Hlynur Helgason.
Hlynur Helgason.

Á morgun, þriðjudaginn 14. október,  kl. 17 heldur Hlynur Helgason myndlistarmaður fyrirlestur í Ketilhúsinu á Akureyri undir yfirskriftinni Staðir og staðleysur: Mannlegt ferli í borgarmyndinni og fjallar hann þar um helstu áherslur í ljósmynda- og vídeóinnsetningum sínum.  Fyrirlesturinn er  í röð fyrirlestra sem haldnir eru á hverjum þriðjudegi í Ketilhúsinu kl. 17 í allan vetur. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri.

Hlynur Helgason á að baki langan feril í myndlistinni en hann útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskólanum árið 1986 og með MA-gráðu frá Goldsmiths College í London 1994. Hann hefur á undanförnum árum unnið að listfræðum og myndlist en hann útskrifaðist með doktorsgráðu í listheimspeki frá European Graduate School í Sviss 2010 og er sem stendur lektor í listfræði við Háskóla Íslands.

Í myndlistinni hefur Hlynur löngum beint sjónum að arfleifð mannsins í umhverfi sínu. Hann vinnur í marga miðla s.s. teikningu og málverk auk rýmisverka þar sem ljósmyndir og kvikmyndir spila stórt hlutverk. Í fyrirlestrinum á morgun kemur hann til með að fjalla aðallega um vídeóverkin og hvernig hann beitir kvikmyndavélinni við það að taka upp persónulegt efni sem sýnir umhverfi mannsins í borginni, en þó þannig að maðurinn er yfirleitt fjarri.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn.