Hjartaljósin á borði innviðaráðuneytsins
Í gær birtist í Vikublaðinu á Akureyri grein sem nemendur í fjölmiðlaáfanga í VMA, sem Hafdís Bjarnadóttir og Þóra Ýr Sveinsdóttir kenna, skrifuðu. Í greininni er fjallað um frá ýmsum sjónarhornum um rauðu hjartalaga umferðarljósin á Akureyri sem fyrir löngu eru orðin eitt af sterkari táknum bæjarins.
Í þessum áfanga hjá Hafdísi og Þóru er fjallað um fjölmiðla og fjölmiðlun frá ýmsum hliðum, hvort sem um er að ræða blöð, tímarit, vefmiðla eða ljósvakamiðla. Vikublaðið bauð upp á að nemendur skrifuðu grein um eitthvert áhugavert mál og blaðið myndi síðan birta hana. Nemendur lögðu þá höfuðið í bleyti og upp komu fjölmargar áhugaverðar hugmyndir en niðurstaðan varð sú að fjalla um rauðu hjartaljósin sem sjá má á fjölförnum gatnamótum á Akureyri og eru sannarlega orðin sterkt tákn fyrir bæinn, ekki bara hér á landi heldur einnig utan landssteinanna. Höfðu nemendur samband við guðmóður hjartaljósanna, Margréti Blöndal, og fengu hennar sögu á hvernig þetta allt saman byrjaði. Einnig leituðu þeir upplýsinga hjá Vegagerðinni um þau sjónarmið sem fram hafa komið að hjartalaga ljósin samræmist ekki reglum um umferðaröryggi og í þriðja lagi var leitað álits bæjarstjórans á Akureyri á rauðu hjartaljósunum.
Óhætt er að segja að fjölmargt áhugavert hafi komið fram, m.a. það sem ekki hefur áður komið fram, að rauðu hjörtun eru til umfjöllunar í innviðaráðuneytinu. Komist ráðuneytið að þeirri niðurstöðu að hjartalaga umferðarljós samrýmist ekki gildandi reglugerð um umferðarljós kann svo að fara að málið þurfi að leiða til lykta í samræðu Vegagerðarinnar og Akureyrarbæjar.
Bestu þakkir til Vikublaðsins fyrir frábært samstarf! Grein nemendanna í fjölmiðlaáfanganum er eftirfarandi:
Lengi hefur Akureyrarkirkja verið eitt þekktasta tákn bæjarins en á síðustu árum hefur annað sterkt tákn bæjarins bæst við: rauðu hjartaljósin í umferðarljósum Akureyrar. Þau hafa glatt bæði heimamenn og ferðamenn frá árinu 2008 og eru orðin vinsælt myndefni meðal gesta bæjarins. Hjartaljósin eru ekki aðeins þekkt hér á landi heldur hafa þau einnig vakið athygli erlendis. Almennt þykir Akureyringum vænt um rauðu hjartaljósin en nú ríkir hins vegar óvissa um framtíð þeirra því þau samræmast ekki gildandi reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.
Saga hjartaljósanna
Hugmyndina að rauðu hjartaljósunum átti Akureyringurinn Margrét Blöndal sem á þessum tíma sá um framkvæmd árlegrar hátíðar á Akureyri um verslunarmannahelgina. Margrét starfar nú sem deildarstjóri hjá Sveitarfélaginu Árborg. Hún segir að hugmyndin hafi kviknað heima hjá sér í samtali við Söru Hjördísi dóttur sína og Hildi frænku sína. Þær ræddu meðal annars um hjarta sem hafði verið teiknað á rautt umferðarljós í Brussel. Þá kviknaði hugmyndin að hjartaljósunum því Margréti langaði að breyta ímynd verslunarmannahelgarinnar og hvetja fólk til að vera gott hvert við annað.
Hún fékk bæjarstarfsmenn til liðs við sig og eitt kvöldið fyrir verslunarmannahelgina 2008 fóru Margrét, Gunnþór Hákonarson, þáverandi bæjarverkstjóri, Sara og Hildur um bæinn og komu hjörtunum fyrir í umferðarljósunum. Þegar Akureyringar vöknuðu morguninn eftir blöstu hjörtun við þeim. „Raunar áttu hjörtun bara að vera eina helgi,“ rifjar Margrét upp.
Hún segir að hjörtun hafi hins vegar aldrei verið fjarlægð og að bærinn hafi ákveðið að gera þau að tákni Akureyrar. Hún hafi alls ekki séð fyrir hversu vinsæl þau yrðu. Margrét segir að sér þyki vænt um rauðu hjartaljósin á Akureyri og þau sterku viðbrögð sem þau fái frá gestum bæjarins. „Mér þykir alveg ofsalega vænt um þau,“ segir hún. Að hennar mati sýna ljósin að einföld hugmynd geti breytt miklu og gert umhverfið elskulegra. Hún segist reglulega fá sendar myndir af fólki með hjartaljósin í bakgrunni.
Málið á borði innviðaráðuneytisins
Fyrir um tveimur árum vakti Vegagerðin athygli á því að hjartalaga ljósin samræmdust ekki reglum um umferðarljós. Þar vísaði Vegagerðin meðal annars til þess að hætta skapaðist af öllum þeim ferðamönnum sem stæðu við Glerárgötuna, aðalgötuna í gegnum bæinn, í þeim tilgangi að taka myndir af ljósunum.
Margrét Silja Þorkelsdóttir, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Akureyri, segir að Vegagerðin beri aðeins ábyrgð á umferðarljósum á svokölluðum þjóðvegum í þéttbýli, þ.e. Hörgárbraut, Glerárgötu og Drottningarbraut, en Akureyrarbær sjái um önnur umferðarljós í bænum. Hún segir að Vegagerðinni hafi borist ábending frá utanaðkomandi aðila um að hjartalaga rauðu ljósin gætu ógnað umferðaröryggi því að ferðamenn stöðvuðu gjarnan til að mynda þau, misstu athygli frá umferðinni eða stæðu óvarðir á gatnamótum. Í kjölfarið hafi Vegagerðin skoðað málið og vakið athygli Akureyrarbæjar á því að hjartalaga rauð umferðarljós samræmdust hvorki nýendurskoðaðri reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra (nr. 250/2024) né Vínarsáttmála Sameinuðu þjóðanna um umferðarmerki og umferðarljós frá árinu 1968.
Óvíst hvort hjörtun fái að vera áfram
En hver er staðan núna? Gerir Vegagerðin kröfu um að hjartaljósin verði fjarlægð úr umferðarljósum á Akureyri?
„Málið er til skoðunar hjá innviðaráðuneytinu sem ber ábyrgð á reglugerð nr. 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra. Þar er til skoðunar hvort gerð verði breyting á reglugerðinni til þess að heimila notkun hjartalaga umferðarljósa. Vegagerðin bíður eftir ákvörðun ráðuneytisins en þegar hún liggur fyrir mun Vegagerðin vinna að málinu í samstarfi við Akureyrarbæ,“ segir Margrét Silja Þorkelsdóttir.
Berglind vill halda hjartaljósunum
Bæjarstjórinn á Akureyri, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, vill að rauðu hjartaljósin fái að vera áfram í umferðarljósum bæjarins. „Mér þykir mjög vænt um hjartaljósin og vil að þau fái að vera áfram. Þau byrjuðu sem skemmtileg og hlý hugmynd en hafa á tæpum tveimur áratugum orðið eitt af fallegum einkennum Akureyrar,“ segir Berglind.
En hvað mun Akureyrarbær gera ef Vegagerðin fjarlægir hjörtun úr ljósunum við þjóðveg 1? Berglind segir að komi sú staða upp þurfi að skoða það sérstaklega. „En ég sé enga ástæðu til þess að hjörtun hverfi af þeim ljósum sem eru á forræði Akureyrarbæjar.“
Berglind vonast þó helst til þess að hægt verði að finna lausn með Vegagerðinni svo hjörtun fái að vera áfram við þjóðveg 1. „Akureyri vill halda áfram að gefa frá sér hlýju í gegnum rauðu hjörtun,“ segir Berglind.
Og Margrét vill líka halda hjartaljósunum
Margrét Blöndal vill sömuleiðis að hjörtun fái að vera áfram í umferðarljósunum. Hún segir að sér þætti það alveg ömurlegt ef þau þyrftu að víkja og telur að það hljóti að vera hægt að finna aðra lausn. Hún bendir meðal annars á að setja mætti grindverk við umferðareyjur þar sem ferðamenn safnast saman til að taka myndir. „Ég trúi ekki að það sé ekki hægt,“ segir hún.
Hjartaljósin, sem upphaflega áttu aðeins að prýða bæinn eina verslunarmannahelgi, hafa nú verið hluti af bæjarmynd Akureyrar í tæpa tvo áratugi. Bæði Berglind bæjarstjóri og Margrét upphafskona ljósanna vilja að þau fái að vera áfram um ókomin ár. En eins og fram kemur hér að framan er það nú í höndum innviðaráðuneytisins að ákveða hvort reglugerðinni um umferðarljós verði breytt á þann veg að áfram verði heimilt að hafa rauð hjartaljós á Akureyri.