Fara í efni

Hér eru gerðar kröfur og það er jákvætt

Reynir Franz Valsson í kennslustund í málmsmíði.
Reynir Franz Valsson í kennslustund í málmsmíði.

Strax í 9. bekk í Naustaskóla var Reynir Franz Valsson nokkuð ákveðinn í því að fara á sjóinn og fékk hann leyfi frá skólayfirvöldum til þess að skjótast á sjó áður en hann lauk 10. bekknum. Að Naustaskóla hélt hann áfram til sjós.

Reynir Franz hefur ekki fetað hina hefðbundu skólaslóð. Í stað þess að að fara beint í framhaldsskóla að loknum grunnskóla fór hann sem sagt á sjóinn og var þar meira og minna í sex ár. Byrjaði í dagróðrum á línu á bát frá L-Árskógssandi en var síðan á línuskipinu Sturlu GK í Grindavík í hálft þriðja ár og seinna var hann á Kaldbaki EA, togara Samherja, í um þrjú ár þar til hann settist á skólabekk í VMA haustið 2024.

Reynir Franz, sem er fæddur 2002 og er því á 24. aldursári, rifjar upp að þegar hann fór fyrst á sjóinn hafi hann ætlað að vera á sjónum í eitt ár og  fara síðan í nám í húsasmíði. En áður en kom að því hafi hann prófað smíðar um tíma og komist að raun um að þær ættu ekki við sig. Því hafi hann snúið aftur á sjóinn.

Síðan hafi árin liðið og smám saman hafi áhuginn beinst að vélstjórninni. Eftir að hann eignaðist bíl hafi hann fundið sig vel í viðgerðum og ýmsu brasi í vélum. Það hafi því verið rökrétt ákvörðun að fara í vélstjórnina, nám sem veiti fjölbreytt starfsréttindi til lands og sjávar.

Reynir byrjaði í grunndeild málmiðngreina í VMA haustið 2024 og í framhaldinu hóf hann vélstjórnarnámið sl. haust. Ef allt gengur upp lýkur hann náminu vorið 2029.

Reynir var í verklegum áfanga í málmsmíði hjá Herði Óskarssyni þegar hann var tekinn tali.

Mér líkar námið mjög vel og þetta gengur betur en ég þorði að vona. Ég hef mikla ánægju af bæði vélstjórnarfögunum og málmsmíðinni. Hér eru mjög flottir kennarar sem gera miklar kröfur og það finnst mér mjög jákvætt. Ég neita því ekki að síðasta önn, haustönn 2025, var mjög strembin því þá var ég í þrettán áföngum. Þá tók ég aukaáfanga til þess að ná að ljúka A-réttindum vélstjórnar í vor, ári fyrr en ég hefði ella fengið þau.

Reynir segist hafa farið í sex daga túr á Björgu EA, togskipi Samherja, fyrir páska og eftir að skóla ljúki í maí fari hann aftur á skip Samherja og verði á sjónum í sumar. Og hann segist ekki sjá annað fyrir sér þegar hann ljúki náminu að fullu en að starfa sem vélstjóri til sjós.