Heimsókn menntamálaráðherra Grænlands í VMA
Á hverju skólaári tekur VMA á móti mörgum, erlendum gestum sem koma til að skoða skólann okkar. Fimmtudaginn 11. júní var síðasta heimsókn vetrarins, en það var þriggja manna hópur frá Grænlandi, þau eru gestir númer 98-101 þetta skólaárið.
Nivi Olsen, mennta-, menningar-, íþrótta- og kirkjumálaráðherra Grænlands heimsótti VMA ásamt Kresten Lennert aðstoðarmanni ráðherra og Nuka Kleeman ráðuneytisstjóra. Þau eru á ferð um landið að heimsækja framhalds- og háskóla sem bjóða upp á fjarnám, deifnám eða lotunám.
Á Grænlandi búa í heild um 55.600 manns á landsvæði sem er um 20 sinnum stærra en Ísland. Í höfuðborginni Nuuk búa um 20.000 manns - næst stærstu bæirnir eru Sisimut með um 5600 íbúa og Ilulissat með um 4700 íbúa.
Gestirnir eru hér til að skoða hvernig skólar á við VMA takast á við nám á dreifbýlum svæðum, sem er ein helsta áskorun þeirra á Grænlandi þar sem Grænland er afar strjálbýlt. Á Grænlandi eru um 9 framhaldsskólar með minni deildir á fleiri stöðum. Brottfall nemenda er ansi hátt segir Nivi, en þessi misserin eru um 30% - 50% ungmenna sem klára ekki framhaldsskóla þar í landi. Þetta eru þau að skoða frá grunni og heimsóknir sem þessar mikilvægar í því starfi að þróa kerfi sem virkar fyrir Grænlendinga. Þeim leist vel á VMA og sveigjanleikann sem skólinn býður upp á í fjölda námsgreina. Þetta er ekki fyrsta heimsókn Nivi til landsins, en sonur hennar hefur verið búsettur á Íslandi í nokkur ár.
Í gegnum tíðina hefur VMA átt samskipti við Grænland í gegnum Nordplus og Erasmus+. Á næsta skólaári stefnir hópur verknema í námsferð til Grænlands - en meira um það í haust.
Á myndinni má sjá Grænlenska hópurinn ásamt Benedikt Barðasyni skólameistara og Dagnýju Huldu alþjóðafulltrúa. Á myndina vantar Hönnu Þóreyju formann bókasafns sem fundaði með þeim.