Fara í efni

Heimsókn barna af leikskólanum Hólmasól

Krakkarnir frá Hólmasól með kennurum sínum.
Krakkarnir frá Hólmasól með kennurum sínum.

Eins og vera ber fær VMA marga góða gesti í heimsókn. Í gær heimsóttu skólann leikskólabörn af leikskólanum Hólmasól á Akureyri með tveimur kennurum sínum og skoðuðu nokkrar námsbrautir. Heimsókninni luku krakkarnir, sem eru á síðasta ári á leikskóla og því á leið í grunnskóla í haust, með því að setjast niður í Gryfjunni og fá sér kakó og brauð með osti. VMA þakkar krökkunum og kennurum þeirra kærlega fyrir heimsóknina.