Fara í efni

Héðinn Unnsteinsson með fyrirlestur í VMA

Fjölmargir nemendur og starfsmenn VMA hlustuðu á fyrirlestur Héðins í Gryfjunni í dag.
Fjölmargir nemendur og starfsmenn VMA hlustuðu á fyrirlestur Héðins í Gryfjunni í dag.

Í dag var Héðinn Unnsteinsson, höfundur bókarinnar Vertu úlfur, með geðfræðslu fyrir nemendur og starfsmenn VMA í Gryfjunni. Héðinn hefur starfað á sviði geðheilbrigðismála í tvo áratugi, sem sérfræðingur stjórnvalda og hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, auk þess sem hann hefur kennt, haldið fyrirlestra og skrifað fjölda greina um þessi mál.

Í bók sinni, Vertu úlfur, sem kom út árið 2015 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna það ár, segir Héðinn á hispurslausan hátt frá eigin reynslu, sigrum og ósigrum, baráttu við fordóma og kerfið.

Nokkrum árum síðar var skrifuð leikgerð upp úr bók Héðins sem hét líka Vertu úlfur. Sýningin var frumsýnd árið 2021 og var valin sýning ársins, hlaut sjö Grímuverðlaun: Sýning ársins, leikrit ársins, leikstjóri ársins, leikari ársins í aðalhlutverki, leikmynd ársins, lýsing ársins og hljóðmynd ársins. Titillag sýningarinnar hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin í opnum flokki.