Haustþing starfsfólks í framhaldsskólum á Norðurlandi
Föstudaginn 29. september verður haustþing framhaldsskólanna á Norðurlandi haldið í VMA og MA. Auk skólanna á Akureyri sækir haustþingið starfsfólk Framhaldsskólans á Húsavík, Framhaldsskólans á Laugum, Menntaskólans á Tröllaskaga og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, alls rúmlega 250 manns. Engin kennsla verður í VMA þennan dag nema í helgarnámi heilsunuddara.
Fyrir hádegi verður dagskrá haustþingsins í MA og verður fjallað um gervigreind í námi og kennslu auk umfjöllunar um frumkvöðlafræði. Dagskráin hefst í Kvosinni í MA kl. 9:30 en húsið opnar kl. 9:00. Gengið er inn að vestan frá planinu við Heimavistina og MA.
Kl. 11:45 - 13:15 verður hádegishlé og hádegismatur í Gryfjunni í VMA. Gengið inn að austan og norðan.
Eftir hádegið verða fag- og starfshópafundir sem allir verða haldnir í VMA.
Kort af VMA er hér. G-álma er á efri hæð við norðurinngang.
| Starfsmannahópur/faghópur | Fundarstaður |
| Ræsting | VMA - stofa - B09 |
| Húsumsjón/húsverðir | VMA - B05 |
| Stuðningsfulltrúar | VMA - stofa D-12 |
| Skrifstofa og verkefnastjórar | VMA - B10 |
| Stjórnendur - FS félagar | VMA - skrifst. aðstoðarskólameistara |
| Starfsfólk á bókasöfnum | VMA - bókasafn |
| Námsráðgjafar og sálfræðingar | VMA - D 06 |
| Skólameistarar | VMA - skrifstofa skólameistara |
| Starfsfólk á heimavistum | Lundur heimavist |
| Umsjónarfólk með útibúum dreifnáms | VMA - D 05 |
| Umsjónarfólk með UT-málum og kerfisstjórn | VMA - Fab Lab |
| Íslenska | VMA D-01 |
| Danska, þriðja tungumál og íslenska sem annað mál | VMA D-02 |
| Stærðfræði | VMA - B06 |
| Raungreinar | VMA C08 |
| Enska | VMA B04 |
| Samfélagsgreinar | VMA - B01 |
| Íþróttir og hreyfing | VMA - C04 |
| Starfsbrautarkennarar | VMA D-15 |
| Listnám | VMA - G 06 |
| Viðskiptagreinar og nýsköpun - velja sér aðrar greinar | |
| Byggingagreinar | VMA - E 01 |
| Málmiðn, vélstjórn og bifvélavirkjun | VMA - I 01 |
| Matvælagreinar og starfsfólk í mötuneytum | VMA - matvælabraut |
| Rafiðn - velja sér aðrar greinar | |
| Háriðn, sjúkraliðar og heilsunudd | VMA - C 09 |