Fara í efni

Háskóladagurinn á Akureyri 11. mars

Næstkomandi miðvikudag, 11. mars kl. 11-13, verður hinn árlegi Háskóladagur í húsnæði Háskólans á Akureyri. Þar munu allir háskólar landsins kynna nám sitt og starfsemi. Því gefst nemendum sem kunna að vera að velta háskólanámi fyrir sér í framhaldinu af náminu í VMA gott tækifæri til þess að afla upplýsinga og spyrja um hinar ýmsu námsbrautir sem í boði eru.

Háskóladagurinn var í Reykjavík 28. febrúar sl., þar sem allir háskólarnir kynntu starfsemi sína, hann var síðan á Ísafirði 5. mars sl. og nk. miðvikudag er röðin sem sagt komin að Akureyri.

Sjö háskólar eru á Íslandi: Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Listaháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum. Námsframboð í þessum sjö skólum er afar umfangsmikið, eins og hér má sjá.