Fara í efni

Haraldur Ingi með þriðjudagsfyrirlestur

Haraldur Ingi Haraldsson.
Haraldur Ingi Haraldsson.

Í dag, þriðjudaginn 17. nóvember, kl. 17 verður Haraldur Ingi Haraldsson verkefnastjóri Listasafnsins á Akureyri með fyrirlestur í Ketilhúsinu undir yfirskriftinni GraN verkefnið - grafískur 3æringur.

Í fyrirlestrinum fjallar Haraldur Ingi um Grafík Nordika verkefnið og þá norrænu samvinnu sem er grunnur sýningarinnar GraN 2015 sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri, en þar má sjá tæplega 100 verk 24 grafíklistamanna frá öllum Norðurlöndunum. Auk þess mun Haraldur Ingi tala um skipulagningu á frekara norrænu samstarfi.

Haraldur Ingi Haraldsson útskrifaðist úr nýlistadeild Mynd- og handíðaskóla Íslands 1982 og frá Akademie voor Beeldende Kunst í Enschede í Hollandi 1985. Hann er stjórnarmaður í GraN félaginu og fyrsti forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri.

Fyrirlesturinn er sjöundi í röð þriðjudagsfyrirlestra í vetur.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri.

Aðgangur á fyrirlesturinn í dag er ókeypis.