Grunnskólanemar í heimsókn í VMA
Það var heldur betur margt um manninn á göngum skólans í gær og svo verður einnig í dag. Ástæðan eru árlegar heimsóknir nemenda úr efstu bekkjum grunnskóla á Norðurlandi í VMA til þess að kynna sér skólastarfið frá ýmsum hliðum. Framhaldsskólarnir á Akureyri, VMA og MA, stilla saman strengi sína í þessum grunnskólakynningum og því slá nemendur frá skólum utan Akureyrar tvær flugur í einu höggi og gefst kostur á að heimsækja báða skólana á einum degi.
Nemendur hlýða fyrst á kynningu námsráðgjafa á skólanum og fulltrúar nemendafélagsins Þórdunu kynna félagslífið í skólanum. Síðan er gengið um skólann og kíkt inn á þá fjölbreyttu námsbrautir sem skólinn býður upp á. Óneitanlega er þetta heilmikið fyrir nemendur að melta því Verkmenntaskólinn er einn af stærstu skólum landsins og jafnframt einn af þeim skólum sem býður upp á flestar námsbrautir, verklegar og bóklegar.
Í það heila koma að þessu sinni um 430 grunnskólanemar í VMA af öllu Norðurlandi – frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri. Í gær komu í skólann nemendur úr 10. bekk Síðuskóla á Akureyri og nemendur 9. og 10. bekkjar grunnskóla utan Akureyrar – úr Húnaþingi, Skagafirði, Eyjafirði og Þingeyjarsýslum – en í dag koma í skólann nemendur 10. bekkjar úr grunnskólum á Akureyri.