Fara í efni

Góðir gestir úr MK

Stjórnendur MK á vinnufundi í VMA sl. föstudag. Mynd: Ásta Flosadóttir.
Stjórnendur MK á vinnufundi í VMA sl. föstudag. Mynd: Ásta Flosadóttir.

Síðastliðinn föstudag heimsóttu stjórnendur Menntaskólans í Kópavogi VMA og fengu leiðsögn um skólann, funduðu með skólameistara og aðstoðarskólameistara og fengu svo aðstöðu á Barðaströnd, rými í A-álmu skólans, til vinnufundar, þar sem meðfylgjandi mynd var tekin.

Auk heimsóknarinnar í VMA nutu okkar góðu gestir úr MK ýmissa þeirra gæða sem Akureyri hefur upp á að bjóða -  og önduðu auðvitað að sér í ríkum mæli hreinu og tæru norðlensku lofti!

Kærar þakkir fyrir komuna!