Góðir gestir frá Forth Valley í Skotlandi
Síðastliðið vor fór drjúgur hluti starfsmanna VMA til Skotlands og kynnti sér þar nám frá ýmsum hliðum, heimsótti skóla og stofnanir. Einn skólanna sem var heimsóttur var Forth Valley College í Falkirk, Sterling og Alloa.
Ánægjulegt samstarf komst á við Forth Valley og í framhaldinu var ákveðið að fulltrúar skólans kæmu til Akureyrr. Það varð úr fyrr í þessum mánuði er fimm af stjórnendum Forth Valley komu í heimsókn í VMA og kynntu sér skólastarfið frá ýmsum hliðum.
Gestirnir voru :
Linda Paterson, námskrárstjóri, sem m.a. vinnur að ýmsu varðandi skapandi greinar
Paul Cunningham, einnig námskrárstjóri, með áherslu á ferðaþjónustu og viðburðastjórnun
Andy Wake, lektor með áherslu á umönnun, íþróttir, viðskipti og samfélög
Pauline Jackson, þróunar- og fjármálastjórn , með áherslu á starfsnám, þróun og viðskipti
Laura Fraser, verkefnastjórni, með áherslu á starfsnám, þróun og viðskipti
Auk þess að kynna sér starfið í VMA fóru okkar góðu gestir frá Skotlandi í heimsókn í dælustöð Norðurorku og nýsköpunarsetrið Drift EA á Akureyri. Tveir aðrir skólar voru heimsóttir, annars vegar Menntaskólinn á Tröllaskaga í Ólafsfirði og hins vegar Háskólinn á Akureyri.