Fara í efni

Góðir gestir frá Coublevie í Frakklandi

Góðir gestir frá Coublevie í suðausturhluta Frakklands í heimsókn í VMA.
Góðir gestir frá Coublevie í suðausturhluta Frakklands í heimsókn í VMA.

Í gær komu í VMA góðir gestir frá Frakklandi, fimmtán nemendur úr þrjú hundruð manna skóla í bænum Coublevie í suðausturhluta Frakklands, og með þeim eru tveir kennarar og stjórnarformaður skólans. Gestirnar verða einnig í dag í VMA en á morgun halda þeir í austurátt, skoða sig um í Mývatnssveit og aka síðan austur á land. Stefnan er tekin á að fara hringinn á um viku og kynna sér eitt og annað í íslenskri menningu og virða fyrir sér náttúru landsins. Franski hópurinn er hér með tilstyrk Erasmus+.

Jóhannes Árnason og nemendur hans á náttúruvísindabraut VMA tóku á móti frönsku gestunum, sem var ekki tilviljun því þessir VMA-nemendur ætla að heimsækja franska skólann í Coublevie í mars á næsta ári og dvelja þar í tæpa viku. Á þessari mynd eru VMA-nemarnir og Jóhannes Árnason með frönsku gestunum.

Rauði þráðurinn í heimsókn frönsku gestanna er náttúruvernd í víðum skilningi þess orðs og í því skyni fengu þeir í gær kynningu skrifstofu Náttúrufræðistofnunar á Akureyri.

Sérhæfing þessa skóla í Frakklandi er hestamennska og því mun hópurinn kynna sér íslenska hestinn frá ýmsum hliðum í heimsókninni hingað til lands.

Þessi skóli þekkir bærilega vel til Íslands því þetta er í þriðja skipti sem nemendahópur frá honum kemur til landsins.

Sem fyrr segir koma nemendurnir frá skóla í Coublevie sem er tæplega sex þúsund manna bær í Auvergne-Rhône-Alpes héraðinu í suðausturhluta Frakklands, miðja vegu milli borganna Lyon og Grenoble.