Fara í efni

Góðir gestir á grunnskólakynningu í dag

Hressar stelpur úr Naustaskóla í VMA í dag.
Hressar stelpur úr Naustaskóla í VMA í dag.
Það hefur verið heldur betur margt um manninn í VMA í dag enda árleg grunnskólakynning þar sem 10. bekkingar frá Akureyri og úr nærsveitum hafa sótt skólann heim og kynnt sér hvað hann hefur upp á að bjóða. Nemendur fengu almenna kynningu á skólanum og þeim gafst síðan kostur á að leita upplýsinga frá nemendum og kennurum úr hverri deild skólans. Nemendur kíktu inn í verknámsdeildirnar og fengu að spreyta sig á ýmsu, m.a. prófuðu þeir suðuhermi á málmiðnaðarbraut og prófuðu að lóða á rafiðnaðarbraut. Á matvælabraut var boðið upp á dýrindis pönnukökur sem nemendur í grunndeild matvælabarutar bökuðu. 
Hér eru myndir sem voru teknar á grunnskólakynningunni í morgun.