Góð og hagnýt bókargjöf til byggingadeildar
Á dögunum gaf Kristín Sverrisdóttir, ekkja Gunnars Bjarnasonar húsasmíðameistara og þúsundþjalasmiðs, byggingadeild VMA þrjár bækur sem gefnar voru út í nóvember sl. í minningu Gunnars og veita áhugaverða innsýn í ævistarf hans. Ein bókanna, Framtíð fyrir fortíð okkar – húsaviðgerðir Gunnars Bjarnsonar, fjallar um viðgerðir gamalla húsa sem Gunnar lét sig miklu varða, önnur bók, Hinn taktfasti dans hamars á steðja, fjallar um eldsmíði sem Gunnar stundaði á síðari hluta síns starfsferils og þriðja bókin, Fornaldarsverð Gunnars Bjarnasonar, lýsir smíði Gunnars, þá um tvítugt, á fornaldarsverði.
Í bréfi sem Kristín Sverrisdóttir skrifar og fylgir með bókargjöfinni til byggingadeildar VMA segir:
Bækurnar eru lokapunktur á vinnu við skráningu gagna sem Gunnar lét eftir sig og hafa með vinnu hans við húsaviðgerðir, eldsmíði og smíði tilgötuhúsa að gera. Gögnin voru í nóvember síðastliðnum afhent húsasafni Þjóðminjasafns Íslands og verða þar aðgengileg þeim sem á þurfa að halda.
Vinnan við gögn Gunnars hafði að leiðarljósi að þau væru fengur fyrir aðra sem fást við sams konar verkefni. Bækurnar draga upp mynd af hluta þeirra gagna sem fóru í Þjóðminjasafnið.
Með gjöfinni fylgir sú ósk að bækurnar geti nýst í kennslu og/eða skapað umræðu um ólík vinnubrögð og mikilvægi þess að viðhalda þekkingu á viðgerðum á eldri húsum og umsýslu um byggingararf Íslendinga.
Gunnar Bjarnason fæddist árið 1949 í Reykjavík. Hann lést á líknardeild Landspítala árið 1-2014. Gunnar lauk sveinsprófi árið 1970 og meistararéttindum árið 1987. Hann vann við smíðar allan sinn starfsferil og sérhæfði sig einkum í viðgerðum gamalla húsa. Auk þess að taka þátt í byggingu Þjóðveldisbæjarins í Þjórsárdal og fleiri tilgátuhúsa, t.d. Auðunarstofu á Hólum í Hjaltadal, Eiríksbæjar í Dölum og Eiriksbæjar í Brattahlíð á Grænlandi. Gunnar átti þátt í því að koma Vopnfjarðarhúsunum svokölluðu fyrir á Árbæjarsafni í Reykjavík og kom að fjölmörgum öðrum verkefnum sem munu halda nafni hans á lofti um ókomna tíð.
Verkmenntaskólinn sendir Kristínu Sverrisdóttur bestu þakkarkveðjur fyrir þessa góðu og fallegu gjöf. Víst er að bækurnar nýtast vel, ekki síst bókin um viðgerðir gamalla húsa, sem einmitt eru kenndar í áfanga á þessari önn í byggngadeild skólans.