Fara í efni

Góð gjöf til málmiðnaðarbrautar

Góð gjöf frá Össuri, Formúlu ehf. og Kennametal.
Góð gjöf frá Össuri, Formúlu ehf. og Kennametal.

„Þessi gjöf er okkur mikils virði og við erum afar þakklát fyrir hana,“ segir Hörður Óskarsson, brautarstjóri málmiðngreina, um sameiginlega gjöf Össurar, Formúlu 1 ehf. og Kennametal til málmiðnaðarbrautar VMA.

Gjöfin samanstendur af rennistálum, höldurum fyrir rennistál og álöxlum og segir Hörður að hún komi að góðum notum. „Í peningum er þetta afar verðmæt gjöf og því til viðbótar er frábært að stórfyrirtæki eins og Össur vilji leggja okkur lið og styðja. Það er ómetanlegt fyrir okkur að vita af svo góðum bakhjörlum í atvinnulífinu. Okkur er ljúft og skylt að þakka af heilum hug fyrir þessa gjöf,“ segir Hörður Óskarsson.