Góð gjöf frá Slippfélaginu
05.02.2026
Tveir grunndeildarnemar, Jarl Kolbeinsson Bergeng og Garðar Atli Gestsson, við vörurnar sem Slippfélagið færði byggingadeild að gjöf. Mynd: Helgi Valur Harðarson.
Það er gömul saga og ný að það er ómetanlegt fyrir VMA að eiga góða að sem vilja leggja honum lið og styðja við nám nemenda.
Á dögunum kom fulltrúi Slippfélagsins á Akureyri færandi hendi í byggingadeild VMA og færði henni að gjöf ýmsar vörur sem nýtast nemendum og kennurum á hverjum degi í náminu. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er um að ræða trélím, rykgrímur, pensla og málningarlímbandsrúllur.
VMA færir Slippfélaginu kærar þakkir fyrir þessa góðu gjöf til byggingadeildar.