Fara í efni

Gjörningalistin komið skemmtilega á óvart

Nemendur listnáms- og hönnunarbrautar túlka gjörninginn Dómarinn í Mjólkurbúðinni.
Nemendur listnáms- og hönnunarbrautar túlka gjörninginn Dómarinn í Mjólkurbúðinni.

„Það hefur verið mjög áhugavert og skemmtilegt að læra um gjörningalist og vera í þessum fyrsta námshópi sem tekur sérstakan áfanga í gjörningalist hérna í skólanum. Ég held að mér sé óhætt að segja að við höfðum mikla ánægju af því að taka þátt í A! Gjörningahátíð hér á Akureyri í október sl. Við vorum búin að útpæla hugmyndina sem við síðan unnum með og settum upp sem gjörning í Mjólkurbúðinni. Við undirbjuggum okkur því mjög vel en sjálf uppsetningin var að stærstum hluta spuni. Mér fannst þetta ganga mjög vel og það kom okkur skemmtilega á óvart hversu margir komu til þess að sjá okkur. Það má eiginlega segja að Mjólkurbúðin hafi verið troðfull af fólki,“ segir Númi Kristínarson, nemandi á þriðja ári listnáms- og hönnunarbrautar VMA.

Hér má sjá myndir sem Daníel Starrason ljósmyndari tók á A! Gjörningahátíð, m.a. af gjörningi nemenda VMA í Mjólkurbúðinni. Hér eru myndir sem voru teknar af undirbúningi hátíðarinnar, á gjörningi VMA-nema og fleiri gjörningum á hátíðinni - og hér eru enn fleiri myndir

Núna á haustönn er í fyrsta skipti kenndur sérstakur áfangi á listnáms- og hönnunarbraut VMA þar sem áherslan er á gjörningalist (e. happenings eða performance art). Áfanginn heitir Innsetningarverk og gjörningalist og eftir því sem næst verður komist er þetta í fyrsta skipti sem áfangi með þessari áherslu er kenndur á framhaldsskólastigi á Íslandi. Áfangann kennir Arna G. Valsdóttir.

Í áfangalýsingu segir: Nemandinn vinnur með listformin innsetningarverk og gjörningalist auk þess að kanna tengsl þeirra við sviðslistir. Nemandinn fær þjálfun í að vinna með rými, tíma og líkama og þróar eigin verk með fjölbreyttum miðlum listformanna. Áhersla er á skapandi hugmyndavinnu, tilraunir, skráningu ferlis og gagnrýna umræðu. Nemandinn kynnist og kynnir sér verk listamanna sem vinna rýmistengd verk. Hann ígrundar verk sín í samvinnu við kennara og samnemendur. Hluti námsins fer fram í tengslum við valda list- og menningarviðburði í nærumhverfinu.

Hvað er gjörningalist?

En hvað er gjörningalist?

Á listavefurinn.is er gjörningur skilgreindur á þennan veg:

Orðið gjörningur er notað yfir það sem kallast á ensku „happenings“ eða „performance“. Það er tímabundið verk eða einstakur atburður sem byggist á athöfn sem listamaðurinn framkvæmir í viðurvist áhorfenda. Gjörningurinn tengist gjarnan hversdagslegum athöfnum mannsins og teygir sig inn á svið annarra miðla eins og leiklistar, tónlistar og kvikmynda þar sem ólíkum listgreinum og miðlum er blandað saman. Listamaðurinn notar eigin líkama til að framkvæma ákveðna hugmynd sem oftar en ekki felur í sér ádeilu eða pólitíska sýn og gæðir hana lífi. Gjörningurinn byggist þannig á hugmynd og athöfn en ekki á sýnilegri útkomu í formi listaverks eins og til dæmis málverks eða skúlptúrs. Hann má framkvæma gjörninginn hvar sem er, í listasöfnum, galleríum, úti í náttúrunni eða í almannarými. Gjörningur er framkvæmdur af einum listamanni eða fleirum og oft eru áhorfendur líka þátttakendur. Gjörningurinn getur verið einfaldur og tekið stutta stund eða flókinn og framkvæmdur af hóp í lengri tíma. Eina heimildin um gjörninginn er ljósmyndin, myndbandsupptaka af athöfninni eða skráning á honum (annað hvort fyrir fram eða eftir að honum lauk).

A! Gjörningahátíð
Það fer vel á því að gjörningalist sé kennd sem sérstakur áfangi á listnáms- og hönnunarbraut VMA því líklega má orða það svo að Akureyri sé vagga gjörningalistar á Íslandi. Frá árinu 2015 hefur verið haldin árlega A! Gjörningahátíð á Akureyri, sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Frá upphafi he hafa nemendur listnáms- og hönnunarbrautar VMA fengið að kynnast gjörningalistinni með því m.a. að aðstoða þátttakendur á hátíðinni á einn eða annan hátt. Þetta samstarf A! Gjörningahátíðar og listnáms- og hönnunarbrautar VMA er því ekki nýtilkomið en í ár tóku nemendur í sérstökum gjörningalistaáfanga þátt.

Allir fjórtán nemendur í áfanganum komu að undirbúningsvinnunni fyrir gjörninginn sjálfan en sex nemendur spunnu gjörninginn af fingrum fram í Mjólkurbúðinni. Gjörninginn kölluðu nemendurnir Dómarinn og hugmyndin var í stórum dráttum þessi:

Að dæma einhvern við fyrstu kynni. Dómarinn fjallar um samfélagið og endurspeglaða hugmynd þess á eigin sjálfsmynd. Hafa samfélagsmiðlar áhrif á sjálfsmynd ungmenna? Hefur samfélagslegt umhverfi áhrif á tjáningu? Stendur þú ósjálfrátt sem dómari samfélagsins?

Þrír af nemendunum sex sem sýndu gjörninginn eru Númi Kristínarson, Tómas Ingi Friðfinnsson og Diljá Ísfold Sigurpálsdóttir. Öll eru þau á þriðja ári listnáms- og hönnunarbrautar.

Þau eru sammála um að það hafi fyrst og fremst verið mjög gefandi og skemmtileg upplifun að vinna gjörninginn frá grunni og sýna hann síðan í Mjólkurbúðinni. Áður hafi þau ekki vitað mikið um þetta listform en það hafi komið þeim skemmtilega á óvart, ekki síst hversu mikla fjölbreytni það bjóði upp á. „Ég segi fyrir mig að þetta var ný upplifun og óneitanlega var ég að stíga út fyrir þægindarammann. Áður en við vorum með okkar gjörning tókum við þátt í gjörningi sem Alla – Aðalheiður S. Eysteinsdóttir var með og ég held að það hafi tekið úr okkur mesta hrollinn. Þegar síðan á hólminn var komið held ég að við höfum ekki fundið fyrir stressi,“ segir Dilja Ísfold og Tómas Ingi tekur undir það. Hann sagði að þau hefðu út af fyrir sig ekkert vitað við hverju þau mættu búast og það hefði komið þeim skemmtilega á óvart hversu margir hafi komið til að sjá gjörning þeirra í Mjólkurbúðinni. En ekki aðeins hafi nemendur verið með eigin gjörning, hluti af námi þeirra í gjörningalistaáfanganum hafi falist í því að vera einskonar aðstoðarmenn gjörningalistamanna á A! Gjörningahátíð og þannig hafi þeir kynnst ólíkum gjörningum bæði íslenskra og erlendra gjörningalistamanna.

„Til þessa hafa nemendur á listnáms- og hönnunarbraut fengið lítillega innsýn í gjörningalistina og sögu hennar í listasögu en núna fáum við tækifæri til þess að kynnast þessu listformi mun betur, sem mér finnst frábært. Ég er eiginlega svolítið hissa að þetta skuli ekki hafa verið kennt í sérstökum áfanga fyrr. Gjörningalistin er fjölbreytt og hefur komið mér skemmtilega á óvart,“ segir Númi Kristínarson.

Sem fyrr segir voru fimm nemendur sem túlkuðu gjörninginn í Mjólkurbúðinni:  Dagur Haukdal Gunnarsson, Diljá Ísfold Sigurpálsdóttir, Eydís Elsa Eiríksdóttir, Númi Kristínarson, Rebekka Lóreley Þórarinsdóttir Ryan og Tómas Ingi Friðfinnsson. 
 
Auk þeirra unnu í nemendastarfsteyminu fyrir gjörninginn: Björg Óladóttir, Gísli Þór Magnússon, Júlía Rós Bragadóttir, Mayflor Perez Cajes, Oddur Atli Reykjalín Guðmundsson, Pálína Hrönn Garðarsdóttir, Rakel Eva Valdimarsdóttir og Tara Naomí Hermannsdóttir