Fara í efni

Giorgio Baruchello með þriðjudagsfyrirlestur

Giorgio Baruchello.
Giorgio Baruchello.

Giorgio Baruchello, prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri, heldur fyrirlestur í dag, þriðjudaginn 2. desember, kl. 17 í Ketilhúsinu sem hann nefnir Athugasemdir um mælskufræði og málverk. 

Fyrirlesturinn er í röð svokallaðra Þriðjudagsfyrirlestra sem efnt er til á þriðjudagseftirmiðdögum á haustönn í Ketilhúsinu á vegum listnámsbrautar VMA, Listasafnsins á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Fyrirlesturinn í dag er sá síðasti í þessari fyrirlestraröð á haustönn.

Í fyrirlestrinum ræðir Giorgio Baruchello um hin ævagömlu en gleymdu tengsl milli mælskufræði og málverka og sýna fram á hvernig aðalhugtök mælskufræðinnar hafa verið notuð í sköpun listaverka og túlkun þeirra.

Erindið er flutt á ensku en íslenskar þýðingar tæknilegra orða verða sýndar á glærum.

Giorgio Baruchello lauk doktorsnámi í heimspeki frá Háskólanum í Guelph í Kanada. Meðal þess sem hann rannsakar er félagsheimspeki, kenningar um gildi og verðmæti og hugmyndasaga. Hann ritstýrir veftímaritinu Nordicum-Mediterraneum sem vistað er innan Háskólans á Akureyri.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn og eru allir velkomnir.