Gestkvæmt í VMA í kjördæmaviku
Það er óhætt að segja að það hafi verið gestkvæmt í VMA þessa viku, sem á Alþingi er kölluð kjördæmavika. Sem þýðir að þingmenn eru úti í kjördæmum sínum þessa viku og fara í heimsóknir í fjölmörg fyrirtæki og stofnanir og kynna sér hvernig hinu daglega gangvirki vindur fram.
Í vikunni hafa fulltrúar Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar komið í heimsókn í VMA, þingmenn og fleiri, og fengið kynningu á skólanum frá ýmsum hliðum. Margt hefur borið á góma, m.a. húsnæðismál skólans, en eins og margoft hefur komið fram er VMA einn þeirra verknámsskóla sem hefur beðið eftir úrlausn sinna mála í þeim efnum.
Benedikt Barðason skólameistari ræddi m.a. um húsnæðismálin í viðtali við Vikublaðið á Akureyri á dögunum.
Fulltrúum stjórnmálaflokkanna eru færðar þakkir fyrir að heimsækja VMA og kynna sér skólastarfið. Það er skólanum mikils virði.