Fara í efni

Gefa málmiðnbraut VMA standborvél

Við formlega afhendinu standborvélarinnar í gær. Frá vinstri: Unnur Ása, Bessi, Guðmundur, Bjarni, P…
Við formlega afhendinu standborvélarinnar í gær. Frá vinstri: Unnur Ása, Bessi, Guðmundur, Bjarni, Páll og Hörður.

Málmiðnbrautin í VMA á góða bakhjarla og velunnara út í bæ sem hún leitar til ef endurnýja þarf dýran tækjabúnað. Þetta er brautinni algjörlega ómetanlegt því það er nú svo að tækjabúnaðurinn sem þarf til kennslu í grunndeild málmiðnaðar og í málmsmíðagreinum gengur úr sér með árunum og hann þarf því að endurnýja.

Í gær var formlega afhent eitt stykki standborvél sem er eitt af tækjunum sem er að vonum afar mikilvægt í vélasalnum og mikið notað. Það var komin tími á endurnýjun og því hlupu undir bagga fagfélag málmiðnaðarmanna á svæðinu – Félag málmiðnaðarmanna Akureyri - og þrjú fyrirtæki, Slippurinn Akureyri, Sindri og Kælismiðjan Frost. Af hálfu gefenda mættu í skólann Guðmundur H. Hannesson framkvæmdastjóri Frosts. Páll Kristjánsson framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri, Bjarni Áskelsson fjármálastjóri Slippsins Akureyri og Beggi Bessason, varaformaður Félags málmiðnaðarmanna Akureyri og verkstjóri í Blikk og tækniþjónustunni á Akureyri.

Til fjölda ára hefur Félag málmiðnaðarmanna og þessi fyrirtæki sýnt stuðning sinn í verki á ýmsan hátt. Fyrir þessa góðu gjöf og allt sem gefendur hafa lagt af mörkum í þágu VMA í gegnum tíðina vill skólinn þakka af heilum hug.

Af hálfu VMA veittu gjöfinni viðtöku Hörður Óskarsson brautarstjóri málmiðnbrautar og Unnur Ása Atladóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms í VMA.