Fara í efni

Fyrsti kennsludagur - um 950 nemendur í dagskóla

Nýtt skólaár hefst með formlegum hætti í VMA í dag þegar kennsla hefst samkvæmt stundaskrá.
Nýtt skólaár hefst með formlegum hætti í VMA í dag þegar kennsla hefst samkvæmt stundaskrá.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá í VMA í dag, föstudaginn 18. ágúst. Um 950 nemendur eru skráðir til náms í VMA núna í upphafi vorannar, þar af 215 nýnemar. Samtals eru endurinnritaðir og eldri nemendur ríflega 120.

Móttaka nýnema var í skólanum í gær og í dag, sem fyrr segir, hefst kennsla samkvæmt stundaskrá.

Óhætt er að segja að námsframboð á haustönn sé mikið og líklega hefur það aldrei í tæplega fjörutíu ára sögu skólans verið breiðara. Hefðbundnar bóknáms- og verknámsbrautir verða á sínum stað en við bætast verknámsbrautir sem ekki eru alltaf kenndar. Á vorönn 2023 hófst nám nýs hóps í pípulögnum og hann heldur áfram núna á haustönn. Kjötiðn verður kennd og einnig fer af stað nýr hópur í múrsmíði. Þá heldur áfram kvöldskóli í rafvirkjun. Þá verður boðið upp á nám í bifvélavirkjun. Og síðan en ekki síst skal þess getið að á önninni hefst nám í heilsunuddi sem er ný námsbraut við skólann.