Áhugaverðar talnaupplýsingar
Á vef VMA er að finna fróðlegar tölulegar upplýsingar um nemendur VMA, sem Jóhannes Árnason kennari hefur tekið saman í mörg undanfarin ár. Út frá þessum gögnum má auðveldlega greina hvaða nemendur skólans eru að koma, skipting þeirra eftir kynjum og margt fleira.
Ef einungis er horft til dagskóla kemur í ljós að í mörg undanfarin ár hafa um það bil sex af hverjum tíu nemendum skólans verið með lögheimili á Akureyri. Í miðjum COVID-19 faraldrinum var þetta hlutfall hæst eða 65% en núna á haustönn er hlutfall nemenda frá Akureyri í VMA 58%. Þegar við bætast nemendur úr Eyjafirði utan Akureyrar er hlutfallstalan 77%, sem þýðir að núna á haustönn 2026 eru 33% nemenda skólans frá öðrum svæðum en af Eyjafjarðarsvæðinu. Þetta hlutfall hefur breyst lítið í gegnum árin.
Ef horft er til kynjaskiptingar nemenda núna á haustönn kemur í ljós að karlar eru 65,8% nemenda skólans, konur 33,8% og kynsegin eru 0,4% nemenda skólans. Þetta er ekki ósvipað kynjahlutfall og verið hefur. Þó má greina frávik á síðustu árum, t.d. 2023 þegar 68% nemenda voru karlar og 31% konur og 2021 þegar um 60% nemenda voru karlar en 40% konur.
Á þessum hlekk á heimasíðu skólans er að finna þessar tölulegu upplýsingar um nemendur VMA frá 2007 til og með 2026.