Fara í efni

Fjölskyldan og ljósmyndir

Ingibjörg Sigurðardóttir bókmenntafræðingur
Ingibjörg Sigurðardóttir bókmenntafræðingur

Í dag, þriðjudaginn 21. mars, kl. 17-17.40, heldur Ingibjörg Sigurðardóttir bókmenntafræðingur þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu. Yfirskrift fyrirlestursins er Fjölskylduarfleið: ljósmyndir, frásagnir og erfiminni.  

Fjölskyldan er ein af grundvallarstoðum samfélagsins og innan hennar viðgengst ákveðin menning sem lýtur að sameiginlegum uppruna, minningum og viðhaldi hefða. Með aukinni almenningseign á myndavélum hafa ljósmyndir farið að leika stærra hlutverk í þessu samhengi. 
Í fyrirlestrinum fjallar Ingibjörg um fjölskyldumenningu og sameiginlegar minningar í tengslum við ljósmyndir og frásagnir þeim tengdum í samhengi við eigin fjölskyldusögu þar sem amma hennar og nafna, Ingibjörg Steinsdóttir leikkona (1903-1965) gegnir aðalhlutverki.

Ingibjörg Sigurðardóttir er með MA-próf í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hún hefur kennt við Háskólann á Akureyri í yfir tíu ár, bæði innan félagsvísinda- og lagadeildar og kennaradeildar. Síðustu ár hefur hún einkum kennt íslensku sem annað mál og íslenskar bókmenntir fyrir erlenda skiptinema við skólann. Í rannsóknum sínum hefur hún aðallega beint sjónum að æviskrifum og notkun persónulegra heimilda. 

Sem fyrr er ókeypis aðgangur að fyrirlestrinum í dag. Hann er sá síðasti í vetur í röð fyrirlestra á þriðjudögum í Ketilhúsinu sem hafa verið reglulega síðan sl. haust. Þráðurinn verður aftur tekinn upp næsta haust.