Fara í efni

Fjölmenni á opnu húsi í dag

Baldvin Ringsted enskukennari fræðir gesti á opnu húsi í dag.
Baldvin Ringsted enskukennari fræðir gesti á opnu húsi í dag.

Óhætt er að segja að mikill fjöldi fólks hafi sótt VMA heim síðdegis í dag, kl. 16.30-18.30, á árlegu opnu húsi. Allar deildir voru opnar upp á gátt og gafst fólki kostur á að fræðast um skólastarfið frá ýmsum hliðum. Ekki síst komu í skólann í dag nemendur sem eru að ljúka 10. bekk grunnskóla í vor og forráðamenn þeirra enda tekur við nýr kafli í haust í lífi þeirra þegar framhaldsskólinn tekur við.

Starfsfólk í VMA sem man tímana tvenna hafði orð á því að sjaldan hafi jafn margir sótt skólann heim á opnu húsi, sem er virkilega ánægjulegt. Öllum þeim sem heimsóttu skólann í dag eru færðar bestu þakkir fyrir komuna.

Hér er fullt af myndum frá opnum degi sem Hilmar Friðjónsson kennari tók.